Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Hörđur og Heimir voru yfirburđamenn í liđinu í kvöld



5. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fyrsti sigur Akureyrar á tímabilinu stađreynd

Ţađ var mikilvćgur sigur sem Akureyri sótti á Seltjarnarnesiđ í kvöld og ţar međ er vonandi ísinn brotinn á ţessu tímabili. Heimir Örn Árnason skorađi fyrsta mark leiksins og gaf ţar međ tóninn en Heimir átti flottan leik, sérstaklega í fyrri hálfleik ţar sem hann sýndi allar sínar bestu hliđar.

Gróttumenn komu sprćkir til leiks og tóku frumkvćđiđ í leiknum, komust í 5-2 á međan fátt gekk upp hjá Akureyri. Heimir var nánast eini mađurinn sem hélt haus í sóknarleiknum og jafnađi í 6-6 og Akureyri komst yfir í 6-7 og aftur í 7-8 en Grótta var sterkari á lokamínútum hálfleiksins og leiddi međ tveim mörkum, 11-9 í hálfleik.


Heimir skorar eitt af mörkum sínum í kvöld. Mynd: Fréttablađiđ

Af ţessum níu mörkum skorađi Heimir Örn sex en ţeir Guđlaugur, Hreinn og Oddur eitt hver. Hafţór byrjađi í markinu og varđi fjögur skot, ţar af eitt vítakast en Hörđur Flóki kom inná og byrjađi međ tilţrifum.

Grótta jók muninn í ţrjú mörk í upphafi seinni hálfleiks en ţá tók Árni Sigtryggsson sig til og skorađi tvö góđ mörk í röđ og héldu menn ađ hann vćri ţar međ ađ vakna til lífsins en ţví miđur entist sá kippur ekki lengur.

Akureyri náđi ađ jafna leikinn í 14-14 og komst loks yfir í 16-17. Tveggja marka forysta náđist 18-20 og Akureyri virtist hafa ţokkaleg tök á leiknum án ţess ţó ađ hrista Gróttumenn af sér. Ţađ var smá titringur í mönnum á lokasekúndunum, Grótta minnkađi muninn í 21-22 og fengu tćkifćri til ađ jafna en Hörđur Flóki varđi síđasta skot ţeirra og Akureyri hélt út síđustu andartökin.


Heimir og Hreinn standa vörnina í kvöld. Mynd: mbl.is

Kćrkominn sigur en einhvernveginn finnst manni liđiđ ekki ná ađ sýna hvađ í ţví býr. Eins og áđur segir var Heimir Örn Árnason allt í öllu í fyrri hálfleik og Hörđur Flóki varđi vel í seinni hálfleik og eiginlega bjargađi sigrinum međ mikilvćgum vörslum úr opnum fćrum.

Mörk Akureyrar: Heimir Örn Árnason 6, Jónatan Magnússon 4 (2 víti), Heiđar Ţór Ađalsteinsson 3, Árni Sigtryggsson 2, Guđlaugur Arnarsson 2, Oddur Gretarsson 2, Hreinn Hauksson 1 og Hörđur Fannar Sigţórsson 1 mark.

Hörđur Flóki Ólafsson varđi 11 skot, ţar af eitt vítakast.
Hafţór Einarsson 4, 1 vítakast.

Viđ vitum ađ liđiđ er vel mannađ en eitthvađ virđist vanta upp á hugarfariđ. Mađur saknar meiri grimmdar í varnarleiknum og sóknarleikurinn í kvöld var á löngum köflum alls ekki nógu árangursríkur.
Eftir sigurinn er Akureyri komiđ upp í 5. sćti deildarinnar. Nćsti leikur er heimaleikur gegn Stjörnunni ţann 12. nóvember og nú ţurfa allir ađ leggjast á eitt og fylgja ţessum sigri eftir.


Árni međ góđar gćtur á Jóni Karli hornamanni Gróttu Mynd: Valli visir.is

Jónatan Magnússon var tekinn tali af blađamanni Vísis eftir leikinn og spurđur hvort ţađ hefđi ekki orđiđ neyđarlegt ađ tapa fyrir eins ţéttvöxnu liđi og Grótta er?
„Jú, ţví er ekki ađ neita ađ ţađ hefđi veriđ neyđarlegt. Ţađ er líka dapurt ađ skora ekki fleiri mörk á ţá,“ sagđi Jónatan sem vildi samt hrósa Gróttuliđinu.
„Ţeir eru ađ spila mjög skynsamlega og vinna vel úr sínu. Eru ekki ađ henda frá sér boltanum í tíma og ótíma.
Viđ ćtluđum ađ vinna ţennan leik og Stjörnuna nćst. Viđ höfum ćft vel núna og menn ađ koma til eftir veikindi og meiđsli,“
sagđi Jónatan og bćtti viđ ađ liđiđ ćtli sér stóra hluti ţrátt fyrir brösuga byrjun.
„Viđ eigum möguleika á ađ gera einhverja hluti í vetur enda međ hörkuliđ. Ţessi sigur mun kveikja í okkur og viđ erum ađ styrkjast.“
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson