Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stuðningur áhorfenda hefur allt að segja í dag

12. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Stjarnan kl. 19:00 (textalýsing)

Það þarf varla að minna á það að í dag er leikdagur hjá meistaraflokki Akureyrar Handboltafélag. Strákarnir brutu ísinn með mikilvægum útisigri í síðustu viku og ætla að fylgja honum eftir í dag þegar Patrekur Jóhannesson mætir með sína pilta í Íþróttahöllina.

Leikurinn hefst klukkan 19:00 og hafa liðsmenn Akureyrar lofað því að leggja allt í sölurnar, berjast af grimmd en þó sýna gæðabolta eins og Heimir Örn Árnason orðaði það í gær.

Við ætlum að vera með beina textalýsingu frá leiknum fyrir þá sem ekki komast í Íþróttahöllina en við vitum að heimamenn ætla að fjölmenna og styðja strákana dyggilega.

Þú smellir hér til að fylgjast með beinu lýsingunni sem opnast í sérstökum glugga og uppfærist síðan sjálfkrafa á 20 sekúndna fresti.

Við vorum með umfjöllun um lið Stjörnunnar á dögunum, smelltu hér til að lesa allt um Stjörnuliðið.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson