 Bergvin var öflugur í dag og Páll markvörđur

| | 21. nóvember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar2 stig í hús hjá 2. flokki í dagÍR-ingar veittu Akureyrarstrákum töluverđa mótspyrnu í dag og virtust koma ţeim verulega á óvart í upphafi leiks. ÍR náđi ţriggja marka forystu 1-4 og hún hélst upp í stöđuna 4-7 en ţá loksins náđu Akureyringar tökum á leiknum. Eftir 15 mínútna leik höfđu ţeir jafnađ í 7-7 og héldu ţessum fína kafla áfram og breyttu stöđunni í 11-7, skoruđu sem sagt sjö mörk í röđ.
Eftir ţađ komst jafnvćgi á leikinn en Akureyri leiddi í hálfleik međ tveim mörkum 16-14.
Akureyri var síđan mun sterkari ađilinn í seinni hálfleik, munurinn varđ mestur sex mörk, 22-16 en ÍR-ingar gáfust ekki upp og minnkuđu muninn niđur í ţrjú mörk 22-19. Leikurinn varđ ţó aldrei neitt spennandi, Akureyri komst í 25-20 en ÍR fylgdu í humátt á eftir og á lokasekúndunni minnkađi Ágúst Stefánsson, fyrrum leikmađur Akureyrar, muninn fyrir ţá í tvö mörk ţannig ađ lokatölur leiksins urđu 30-28 fyrir Akureyri.
Í heildina var nettur kćruleysisbragur á leik Akureyrar ađ ţessu sinni og enginn sérstakur glćsibragur á leiknum. ÍR liđiđ er hins vegar mun sterkara en stađa ţeirra í deildinni gefur til kynna.
Mörk Akureyrar skoruđu: Oddur Gretarsson 10 (2 víti), Bjarni Jónasson 7 (1 víti), Bergvin 4, Halldór Logi Árnason 3, Jón Heiđar 3, Jón Ţór Sigurđsson 2 og Jóhann Gunnarsson 1. Páll stóđ í markinu í byrjun og varđi 4 skot, Siguróli kom inná eftir 20 mínútna leik og varđi vel, tók 13 skot. Nokkrir af ungu strákunum kátir međ sigurinn Nú kemur langt hlé hjá strákunum og nćsti leikur í Íslandsmótinu ekki fyrr en 9. janúar. Stađa liđsins er samkvćmt vćntingum en ţeir eru einir á toppi deildarinnar međ 9 stig af 10 mögulegum. Heimir Örn Árnason og Haddur Stefánsson dćmdu leikinn vel, segja má ađ Dagur Árni Heimisson hafi veriđ í hlutverki eftirlitsdómara
|