 Heimir Örn Árnason í baráttu viđ Erni Hrafn
| | 3. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarFrábćr sigur Akureyrar á Val 29-25Ţađ var sannkölluđ stórleikjastemming í Íţróttahöllinni í kvöld ţegar Akureyri tók á móti Val. Áhorfendur fylltu stúkuna og strax í upphafi var ljóst ađ bćđi leikmenn og áhorfendur voru vel međ á nótunum. Valsmenn höfđu frumkvćđi í leiknum til ađ byrja međ en Akureyri jafnađi alltaf jafnharđan. Ţannig var jafnt á nánast öllum tölum upp í 8-8
Eftir tuttugu mínútna leik náđi Akureyri forystunni 9-8 og mestur varđ munurinn 16-13 í fyrri hálfleik en norđanpilturinn Arnór Ţór Gunnarsson í liđi Vals minnkađi muninn í tvö mörk 16-14 úr vítakasti fyrir hálfleik. Jónatan var atkvćđamikill í fyrri hálfleiknum Hafţór Einarsson stóđ í markinu í fyrri hálfleik, var seinn í gang en stóđ sig vel seinni hluta hálfleiksins og varđi ţá vel. Í varnarleiknum gengu menn vasklega fram og uppskáru fjórar brottvísanir í fyrri hálfleik og ţar ađ auki fengu Valsmenn sex vítaköst, sum hver fyrir litlar sakir. Í upphafi leiksins átti Akureyri fjölmörg skot í stangir og ţverslá, trúlega smeykir viđ Hlyn í Valsmarkinu en sóknin small síđan vel saman og í heild fínn bragur á liđinu.
Valsmenn komu sterkir til seinni hálfleiks og náđu ađ jafna í 18-18 eftir tíu mínútna leik en ţá kom frábćr kafli hjá Akureyri sem sneri leiknum sér í hag og náđi fimm marka forystu 25-20 og tíu mínútur til leiksloka.
Nćstu mínútur tóku Valsmenn völdin og minnkuđu muninn í eitt mark, 26-25 og fór ađ fara um stuđningsmenn Akureyrar sem hafa fulloft upplifađ dramatík á síđustu mínútunum. En Akureyri keyrđi áfram af fullum krafti, Hörđur Flóki múrađi upp í markiđ ţađ sem eftir var og átti eitrađar sendingar fram í hrađaupphlaup sem skiluđu frábćrum fjögurra marka sigri 29-25..JPG)
 Ţađ var ósvikin sigurstemming í leikslok Leikur Akureyrar var hreint út sagt frábćr í dag, stemmingin í liđinu til fyrirmyndar og áhorfendur skemmtu sér konunglega allan tímann. Hörđur Flóki kom í markiđ um miđjan seinni hálfleikinn og hrökk fljótlega í gírinn. Sigurinn í dag var ţó fyrst og fremst sigur frábćrrar liđsheildar og frábćrrar stemmingar. Ţrátt fyrir smáhökt undir lokin ţegar Valur skorađi fjögur mörk í röđ og minnkađi muninn í eitt mark var magnađ ađ sjá ađ liđiđ brotnađi ekki heldur spýtti í lófana og klárađi leikinn međ stćl.
Heimir Örn Árnason var valinn mađur leiksins en hann var feikilega öflugur í dag bćđi í sókn og ekki síđur í vörninni.
Mörk Akureyrar í dag: Jónatan Magnússon 7 (1 víti), Oddur Grétarsson 6 , Heimir Örn Árnason 5, Árni Ţór Sigtryggsson 4, Guđlaugur Arnarsson 3, Heiđar Ţór Ađalsteinsson 2, Andri Snćr Stefánsson 1 og Hörđur Fannar Sigţórsson 1
Í markinu varđi Hafţór Einarsson 10 skot og Hörđur Flóki Ólafsson 8.
Hjá Val var Arnór Ţór Gunnarsson markhćstur međ 8 mörk, ţar af 5 úr vítaköstum.
Dómarar leiksins voru ţeir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, yfirleitt bestu dómarar landsins en áttu ekki sinn besta dag ađ ţessu sinni.
Ađ lokum verđur ađ geta frábćrra áhorfenda sem trođfylltu stúkuna og tóku virkan ţátt í leiknum allan tímann og munar svo sannarlega um minna. Hreint út sagt frábćr stemming á pöllunum í kvöld Ţađ er ţví óhćtt ađ fara ađ hlakka til nćsta fimmtudags en ţá verđur annar og ekki minni baráttuleikur ţegar efsta liđ deildarinnar, Haukar mćtir til leiks.
|