 Stjórn HSÍ tók ákvörðun að standa við áður gert mótafyrirkomulag
| | 9. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarDeildarbikarinn milli jóla og nýárs - Akureyri á öruggt sætiÁ fundi sínu í gær (þriðjudag) ákvað stjórn HSÍ að staðið yrði við áður áformaða Deildarbikarkeppni þar sem fjögur efstu lið N1 deilda karla og kvenna eigast við. Það hafa verið uppi sögusagnir um að ekkert yrði af keppninni í ár en nú hefur stjórn HSÍ tekið af öll tvímæli um það.
Þátttökurétt eiga fjögur efstu lið deildanna eins og staðan verður nú um miðjan desember (eftir níu umferðir hjá körlunum) að því gefnu að öll liðin hafi leikið jafnmarga leiki. Staðan í dag er þannig að þrjú lið, Haukar, Valur og Akureyri eru örugg í keppnina en FH, Grótta og HK eiga öll möguleika á að verða fjórða liðið.
Sú athyglisverða staða gæti komið upp að fjögur lið yrðu jöfn í 2.-5. sæti með 11 stig. Ef Akureyri tapar fyrir Haukum, FH vinnur Val og HK vinnur síðan bæði Hauka og Gróttu. Þar með yrðu Akureyri, Valur FH og HK öll með 11 stig en vegna innbyrðis leikja yrði HK neðst og kæmist því ekki í keppnina.
Keppnin á að fara fram 27. og 28. desember en ekki er búið að ákveða hvar leikirnir fara fram. |