Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hörður Fannar er klár í leikinn í kvöld

10. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri – Haukar klukkan 19:00 (lýsing)

Það er komið að síðasta leik ársins í N1 deildinni hjá Akureyri Handboltafélagi. Andstæðingar okkar manna í dag eru engir aðrir en Íslandsmeistarar Hauka sem jafnframt eru efstir í deildinni fyrir leikinn. Með sigri í dag tekur Akureyri hins vegar toppsætið og það má öllum vera ljóst að alt verður lagt í sölurnar til að það verði.

Leikurinn hefst eins og vanalega klukkan 19:00 en við brýnum fyrir fólki að koma tímanlega þar sem reikna má með fjölmenni. Forsala aðgöngumiða verður á Glerártorgi í dag frá klukkan 14:00- 17:30.

Við verðum með beina textalýsingu frá leiknum eins og vanalega fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Þú smellir hér til að fylgjast með beinu textalýsingunni sem opnast í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 20 sekúndna fresti.

Einnig ætlar SportTV. is að vera með beina útsendingu á netinu frá leiknum. Þeir félagar hafa verið til mikillar fyrirmyndar í vetur. Til að fylgjast með útsendingu SportTV.is skaltu smella hér eða á merkið hér við hliðina.


Stóra spurningin er svo hvort að RÚV sjái ástæðu til að mynda leikinn eða hvort afskiptaleysið verði eins æpandi og í síðasta viku þegar Akureyri lék gegn Val?

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson