 Lið Akureyrar tekur nú þátt í keppninni í fyrsta sinn
| | 24. desember 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarFlugfélags Íslands Deildarbikarinn 2009Eins og kunnugt er fer Deildarbikar HSÍ fram dagana 27. og 28. desember en keppnin hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin 2 ár. Í ár ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn.
Í karlaflokki eru það Haukar, FH, Akureyri og Valur og í kvennaflokki er það Valur, Stjarnan, Fram og Haukar. Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri.
Allir leikir mótsins verða sýndir beint á SportTV.is
Leikjaplanið er eftirfarandi:
Sunnudagur 27. desember 2009 FÍ Deildarbikar kvenna kl. 12:00 Valur - Haukar FÍ Deildarbikar karla kl. 14:00 Haukar - Valur FÍ Deildarbikar karla kl. 16:00 FH – Akureyri FÍ Deildarbikar kvenna kl. 18:00 Stjarnan - Fram
Mánudagur 28.desember 2009 FÍ Deildarbikar karla kl. 18:00 Úrslit FÍ Deildarbikar kvenna kl. 20:00 Úrslit |