Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Árni Sigtryggsson átti frábćran leik í kvöld
Flóki var drjúgur í markinu



8. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Auđveldur sigur Akureyrar á Gróttu - myndir

Leikur Akureyrar og Gróttu í Íţróttahöllinni kvöld var vel sóttur af áhorfendum ađ vanda og hlýtur megniđ af áhorfendum ađ hafa fariđ ánćgđur heim eftir stórsigur heimamanna 33-19. Ţó verđur ađ segja ađ spennuleysiđ í leiknum hafi dregiđ örlítiđ úr skemmtanagildi hans en viđ stuđningsmenn AHF kvörtum nú samt ekki yfir ţví.

Strákarnir okkar í Akureyri gáfu tóninn strax í byrjun og komust í 5-1. Munurinn hélst nćstu mínútur en ţegar um 10 mín voru til hálfleiks kom ákveđinn vendipunktur ţegar gestirnir minnkuđu muninn í tvö mörk 10-8. Akureyri setti ţá í hćrri gír og hreinlega keyrđi yfir ráđalausa og ţunga Gróttumenn á síđustu mínútum fyrri hálfleiksins og var stađan 17-10 í hálfleik.


Árni lék Gróttumenn grátt í fyrri hálfleik og fékk líka ađ kenna á ţví

Óţarfi er ađ hafa mörg orđ um seinni hálfleikinn, ţar hélt einfaldlega sama sagan áfram, Akureyri mun fremra gestunum á öllum sviđum og mestur varđ munurinn 16 mörk í stöđunni 30-14. Rúnar ţjálfari leyfđi yngri strákunum ađ spreyta sig síđustu mínútur leiksins og stóđu ţeir ágćtlega fyrir sínu en lokatölur urđu 33-19 fyrir Akureyri.

Árni Sigtryggsson var ađ leik loknum valinn mađur leiksins, hann skorađi alls 8 mörk, ţar af 7 í fyrri hálfleik og átti nokkrar glćsilegar stođsendingar á félaga sína. Oddur Gretarsson spilađi einnig frábćrlega (ađ vanda liggur manni viđ ađ segja) og var markahćsti mađur liđsins međ 9 mörk. Hörđur Flóki var međ um 20 bolta varđa í markinu og stóđ ađ vanda fyrir sínu. Raunar átti allt Akureyrarliđiđ fínasta leik, jafnt í vörn sem sókn og verđur ţađ ekki tekiđ af ţeim ţrátt fyrir ađ andstćđingurinn í kvöld hafi ekki sýnt mikla mótspyrnu.

Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 9 (3 víti), Árni Ţór Sigtryggsson 8, Heimir Örn Árnason 4, Hörđur Fannar Sigţórsson 3, Hreinn Ţór Hauksson 2, Jónatan Ţór Magnússon 2 (1 víti), Andri Snćr Stefánsson, Bjarni Jónasson, Geir Guđmundsson, Guđlaugur Arnarsson og Guđmundur Hólmar Helgason 1 mark hver.


Tvö stig í hús og fagnađ ađ hćtti hússins

Sjá fleiri myndir Ţóris Tryggvasonar frá leiknum

Nćsti leikur er gegn Stjörnunni á útivelli fimmtudaginn 18. febrúar nk. og vonandi halda Akureyringar áfram á sömu braut ţá.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson