Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það stefnir í að við fáum girnilegar handboltauppskriftír hér á síðunni



14. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Matarkrókurinn - Guðlaugur Arnarsson

Í blaðinu Vikudegi er athyglisverður þáttur sem kallast Matarkrókur. Þar eru ýmsir matgæðingar fengnir til að birta uppskriftir sínar og skora síðan á einhvern til að koma í næsta þátt. Þann 4. febrúar var handboltamaðurinn Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyrar, matarkrókur vikunnar mættur með girnilega uppskrift. Guðlaugur segir að þetta sé tilvalinn réttur daginn fyrir leik, eða á leikdag.
  • Pasta í skinkurjóma
  • 250 g pastareimar (tagliatelle)
  • 200 g skinka
  • 200 g sveppir
  • 1 blaðlaukur
  • 1 msk. matarolía
  • 1 dós sýrður rjómi (10%)
  • 1 msk. ljóst franskt sinnep
  • 1 – 2 hvítlauksrif
  • Salt og pipar
Pastað soðið eftir leiðbeiningum, skinkan skorin í strimla og blaðlaukur í sneiðar. Hitið sveppi og blaðlauk í olíunni, bætið skinkunni á pönnuna. Sýrða rjómanum er hrært rólega út í. Bragðbætt með hvítlauk, sinnepi, salti og pipar.

Sósunni er hellt yfir pastað og síðan borið fram. Gott er að hafa hvítlauksbrauð með og parmesanost til að dreifa yfir pastað.

„Virkilega bragðóður réttur sem auðvelt er að útfæra og breyta“ segir Gulli sem skoraði á Hörð Fannar Sigþórsson, línumann að koma með næstu uppskrift.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson