 Varnarmenn Fram réðu lítið við Árna Sigtryggsson í kvöld


| | 22. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarStórleikur Harðar Flóka og Árna í góðum sigri á FramAkureyri vann í kvöld nokkuð öruggan sigur á Fram í Höllinni 28-25 þar sem þeir Hörður Flóki Ólafsson markvörður og Árni Sigtryggsson fóru á kostum í liði Akureyrar.
Minna var skorað í fyrri hálfleik en oft áður í leikjum Akureyrar í vetur, en heimamenn voru með forystu 13-11 þegar flautað var til hálfleiks. Þeir voru raunar klaufar að hafa ekki mun meiri forystu því þeir fóru illa með fjölda dauðafæra og hefðu einu sinni getað komist í sex marka forystu í fyrri hálfleiknum en fóru illa að ráði sínu og hleyptu gestunum inn í leikinn.
Jafnræði var með liðunum framan af seinni hálfleik eða allt þar til að um 14 mínútur voru til leiksloka að Akureyri tók góðan kipp og komst í sex marka forystu 23-17. Eftir fylgdi nokkuð slæmur kafli þar sem Fram komst aftur inn í leikinn og minnkaði muninn í 20-22, Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar tók þá leikhlé. Ræða Rúnar virðist hafa farið vel í menn því Akureyringar tóku aftur við sér og lönduðum að lokum góðum 28-25 sigri. Góðum sigri fagnað í Höllinni Sóknarleikur Akureyrar var kaflaskiptur í leiknum, en góðu kaflarnir þó fleiri en þeir slæmu. Mikið munar um að Árni Sigtryggsson virðist vera búinn að finna sitt gamla form og skoraði hann 11 góð mörk, öll þeirra með langskotum fyrir utan. Vörnin var allan leikinn nokkuð góð og Hörður Flóki var að vanda frábær fyrir aftan hana og varði 25 skot alls í leiknum. Þeir Hörður Flóki og Árni drógu að öðrum ólöstuðum vagninn í þessum leik og voru frábærir. Frábærir stuðningsmenn sem aldrei klikka Áður en botninn er sleginn í þessa grein verður að minnast á að áhorfendur á leiknum voru að vanda fjölmargir og létu ágætlega heyra í sér í seinni hálfleik eftir að hafa verið heldur rólegir í þeim fyrri!
Mörk Akureyrar: Árni Sigtryggsson 11, Oddur Gretarsson 5, Jónatan Magnússon 4, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Guðmundur Helgason 2, Heimir Árnason 2, Hreinn Hauksson 1. Hörður Flóki Ólafsson varði 25 skot en Hafþór Einarsson kom inná og reyndi við eitt vítakast.
Jón Stefán Jónsson
Skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum. |