Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

FH hefur ekki tapađ stigi í Höllinni undanfarin tvö ár

15. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Risaleikur gegn FH og Stórsveitin í Höllinni á fimmtudaginn

Ţađ verđur svo sannarlega fjör í Íţróttahöllinni á fimmtudaginn ţegar Akureyri og FH mćtast í toppbaráttunni í N1 deild karla. Akureyri er í 2. sćti deildarinnar međ 20 stig en FH er einungis einu stigi á eftir ţannig ađ ţađ er mikiđ í húfi í ţessum leik.

FH hefur leikiđ Akureyri grátt ţegar liđin hafa mćst hér á Akureyri síđastliđin tvö tímabil. Tveir deildarleikir og einn bikarleikur ţar sem FH hefur fariđ međ sigur af hólmi í ţeim öllum. Ţađ er ţví sannarlega kominn tími á ađ Akureyri reki Hafnarfjarđargýluna úr Höllinni í eitt skipti fyrir öll.

Akureyri vann sannfćrandi sigur á Stjörnunni í síđasta leik og hefur veriđ á góđri siglingu í síđustu leikjum. Leikmenn hafa sýnt fína baráttu, kraft og sigurstemmingu í síđustu leikjum sem er ađ sjálfsögđu miklu skemmtilegri heldur hitt.

FH ingar eru svo sannarlega međ frábćrt liđ eins og viđ höfum fengiđ ađ kynnast í vetur og gerđu sér lítiđ fyrir og lögđu nýkrýnda bikarmeistara Hauka ađ velli á sannfćrandi hátt í síđustu umferđ.

Viđ eigum von á glćsilegum gestum í Höllina á fimmtudaginn en Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri ćtlar ađ spila fyrir leik og í hálfleik undir stjórn Alberto Carmona.


Alberto Carmona flottur viđ stjórnvölinn


Hljómsveitin fór á kostum í Höllinni í fyrravetur

Hljómsveitin kom einnig fram í tengslum viđ leik í fyrravetur og var hreint út sagt frábćr.

Stuđningsmenn geta ţví fariđ ađ hlakka til fimmtudagsins, glćsilegir tónleikar og rafmagnađur handboltaleikur, ţađ verđur ekki betra!

Nánari upplýsingar um starfsemi Tónlistarskólans á Akureyri á heimasíđu skólans http://tonak.is



Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson