 Frábært framtak KEA manna
| | 16. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarKEA býður öllum handboltaáhugamönnum á FH leikinn!Það fer ekki á milli mála að leikur Akureyrar og FH á fimmtudaginn er einn af stærstu leikjum tímabilsins enda mikið í húfi fyrir bæði lið. KEA hefur ákveðið að bjóða öllum frítt á leikinn þannig að nú er kjörið tækifæri fyrir alla áhugamenn að drífa sig í Höllina og styðja við bakið á sínum mönnum.
FH hefur reynst Akureyri afar erfiðir hér á okkar heimavelli þannig að það er fullur hugur í Akureyrarstrákum að snúa nú við taflinu með dyggum stuðningi áhorfenda.
Í forföllum Stórsveitar Tónlistarskólans á Akureyri verður varpað upp sýnishornum frá tónleikum suðurríkjasveitarinnar Lynyrd Skynyrd fyrir leik og í hálfleik.
Taktu því frá fimmtudaginn, leikurinn hefst klukkan 19:00 og rétt að mæta tímanlega, það verður áreiðanlega hvert sæti í Höllinni setið, þökkum KEA fyrir framtakið.
 |