 Heimir kemur örugglega ákveðinn til leiks í dag!
| | 25. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri – Fram í textalýsinguÍ dag er leikin heil umferð í N1 deild karla og mikið undir á hjá öllum liðum. Baráttan er hörð sérstaklega um annað sætið þar sem Akureyri stendur óneitanlega best að vígi en þar má þó ekkert út af bregða. Fram er sömuleiðis í hörkubaráttu um að halda sæti sínu í deildinni. Við getum því lofað háspennu og dramatík í Höllinni í kvöld.
Við höfum oft bent á að í liði Fram eru þrír Akureyringar en samkvæmt nýjustu fréttum verður trúlega enginn þeirra með Fram í kvöld. Óheppnin heldur áfram að elta Magnús Stefánsson frá Fagraskógi en hann fór úr axlarlið í síðasta leik og verður trúlega ekki meira með liðinu á þessari leiktíð. Halldór Jóhann Sigfússon mun vera meiddur og Hákon Stefánsson, bróðir Magnúsar, mun ekki eiga heimangengt vegna anna.
En Framliðið hefur á að skipa hörkumannskap sem mun örugglega berjast fyrir sínu. Akureyrarliðið þarf fyrst og fremst að mæta til leiksins með höfuðið í lagi og spila sinn leik strax frá upphafi.
Við verðum að vanda með textalýsingu frá leiknum.
Þú smellir hér til að fylgjast með.
 |