Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Við stöndum við bakið á okkar mönnum!

26. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Minnum á leik 2. flokks í dag – deildarmeistaratitill í boði

Strákarnir í 2. flokki mæta FH í dag og fer leikurinn fram í Íþróttahúsi Síðuskóla og hefst klukkan 19:30. Með sigri verða strákarnir efstir í deildinni og þar með Deildarmeistarar þannig að ekkert nema sigur kemur til greina.

Önnur úrslit, jafntefli eða tap þýða að liðið endar í 3. sæti deildarinnar en að sjálfsögðu er það ekki valkostur fyrirfram.

Við hvetjum alla til að koma í Síðuskóla í kvöld, þetta verður ekki átakalaust en því fleiri sem leggjast á árarnar, því betra.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson