 Páll átti sannkallaðan stórleik í markinu
| | 27. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Jafntefli í lokaleiknum gegn FHAkureyri og FH mættust í gærkvöldi í Íþróttahúsi Síðuskóla og var mikið í húfi fyrir Akureyri sem gat með sigri tryggt sér deildarmeistaratitilinn en leikurinn hafði í raun enga þýðingu fyrir FH. Fjölmargir áhorfendur mættu á leikinn og var fín stemming í húsinu.
Akureyri hafði fín tök á leiknum í upphafi og náði öruggri forystu 6-2. FH svaraði fyrir sig og náði að jafna í 8-8 en Akureyri hélt frumkvæðinu og hafði yfir 15-13 í hálfleik. Strákarnir voru reyndar klaufar að hafa ekki meira forskot því ekki nýttist að vera tveim mönnum fleiri undir lok hálfleiksins.
Barningurinn hélt áfram í seinni hálfleik og náðu FH ingar að jafna í stöðunni 18-18 og linntu ekki látunum fyrr en þeir voru komnir í 18-21 og höfðu þá skorað fimm mörk í röð. Á þessum tíma var sóknarleikur Akureyrar vandræðalegur, Geir Guðmundsson hafði farið mikinn en aðrir leikmenn virtust missa sjálfstraustið og biðu bara eftir að Geir gerði eitthvað.
Akureyrarliðið kom til baka, jafnaði í 21-21 en FH hélt frumkvæðinu og juku muninn í þrjú mörk, 24-27 þegar stutt var til leiksloka. Akureyri sýndi hins vegar mikla baráttu og jöfnuðu í 27-27 og allt á suðupunkti í húsinu.
FH spilaði langa sókn en missti loks boltann þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. Sá tími dugði þó ekki Akureyri til að koma almennilegu skoti á markið og því varð jafntefli niðurstaðan.
Páll markvörður Akureyrar átti stórleik í markinu og varði fjölmörg skot FH inga úr dauðafærum.
Mörk Akureyrar: Bergvin 8, Geir 6, Halldór Logi 3, Bjarni, Jóhann, Jón Heiðar, Jón Þór og Valþór 2 mörk hver.
Akureyri, Haukar og Selfoss urðu því efst og jöfn að stigum í deildinni en úr innbyrðis viðureignum þeirra eru Haukar með 5 stig, Akureyri 4 og Selfoss 3. Það eru því Haukar sem hampa deildarmeistaratitlinum að þessu sinni en Akureyri hafnar í 2. sæti.
Framundan eru átta liða úrslit hjá strákunum og við greinum frá framhaldinu þegar niðurröðun leikja liggur fyrir. |