 Það mun mikið mæða á Páli í markinu
| | 10. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarÚrslitaleikur Akureyrar og Hauka klukkan 14:00 á sunnudagSvo virðist sem FH hafi fallið frá kæru á framkvæmd leiks þeirra gegn Hauka í dag og því standi úrslitin,þ.e.a.s. 26-25 fyrir Hauka. Úrslitaleikurinn fer þá fram klukkan 14:00 á morgun (sunnudag) í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar mætast sem sé Akureyri og Haukar og verður sigurvegarinn krýndur Íslandsmeistari.
Reikna má með fjölda áhorfenda en vegna staðsetningarinnar er ekki ósennilegt að þeir verði flestir á bandi Haukanna þannig að við hvetjum alla stuðningsmenn Akureyrar sem eiga þess kost að fjölmenna í Strandgötuna og bakka Akureyrarstrákana upp.
Undanfarin ár hefur annað sætið iðulega verið hlutskipti strákanna, bæði í bikar og Íslandsmótum þannig að nú er kærkomið tækifæri til að brjótast út úr þeirri hefð og landa fyrsta Íslansmeistaratitlinum í sögu félagsins.
Athugið að nú er komið í ljós að FH lagði fram kæru og því engir leikir í dag! |