 Stemmingin í úrslitakeppnum er engu lík





| | 16. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarÚrslitakeppnin 2002: fyrsti hluti, 8 liða úrslitinÁ næstu dögum verða hér rifjuð upp úrslitakeppni Íslandsmótsins árið 2002. Það ár léku 14 lið í deildarkeppninni sem lauk eins og hér segir:
Eins og sést hafnaði KA í 5. sæti deildarinnar og Þór í því 7. Átta efstu liðin fóru í úrslitakeppnina á þessum árum en eins og sést þá var harður slagur um að komast í keppnina og réðst ekki fyrr en í síðustu umferðinni. Haukar unnu deildarkeppnina með yfirburðum eins og hér sést og ljóst að liðið sem lenti í 8. sætinu myndi fá það erfiða hlutverk að mæta þeim í 8 liða úrslitunum. Þess skal getið að einhver öflugasti leikmaður Haukaliðsins var enginn annar en Rúnar Sigtryggsson núverandi þjálfari Akureyrar.
Í síðustu umferð deildarkeppninnar sigraði FH Selfyssinga 32-25 og fögnuðu gríðarlega þar sem þeir töldu sig þar með hafa náð 7. sætinu og þar með losnað við að mæta Haukum. En gleði þeirra reyndist skammvinn því að Þór gerði sér lítið fyrir og vann Aftureldingu á sama tíma 35-27 og náði 7. sætinu á eins marks hagstæðari markamun. Raunar var þetta í fyrsta sinn sem Þór náði inn í úrslitakeppnina og því sögulegt ár fyrir Þór. Leikmenn Þórs, Árni Sigtryggsson og Páll V. Gíslason, fagna hér ásamt stuðningsmönnum sigri á Aftureldingu og sæti í úrslitakeppninni í fyrsta skipti. KA hafði hins vegar átt fast sæti í úrslitakeppninni um nokkurra ára skeið og höfðu einmitt leikið úrslitarimmuna gegn Haukum árið áður en það einvígi sigruðu Haukar 3-2.
Ef við skoðum leikmenn liðanna þetta tímabil þá var leikmannahópurinn sem hér segir:
KA Markverðir Egidijus Petkevicius Hans Hreinsson Kári Garðarsson
Útileikmenn Andrius Stelmokas Arnar Þór Sæþórsson Arnór Atlason Árni Björn Þórarinsson Baldvin Þorsteinsson Egill Thoroddsen Einar Logi Friðjónsson Haddur Júlíus Stefánsson Halldór Jóhann Sigfússon Heiðmar Vilhjálmur Felixson Heimir Örn Árnason Hreinn Þór Hauksson Ingólfur Ragnar Axelsson Jóhann Gunnar Jóhannsson Jóhannes Ólafur Jóhannesson Jónatan Þór Magnússon Sævar Árnason
Þjálfari Atli Hilmarsson
|
| Þór Markverðir Björn Björnsson Eðvarð Eðvarðsson Hafþór Einarsson
Útileikmenn Aigars Lazdins Arnar Gunnarsson Árni Þór Sigtryggsson Bergþór Morthens Bjarni Gunnar Bjarnason Brynjar Þór Hreinsson Geir Kristinn Aðalsteinsson Goran Gusic Halldór Oddsson Hörður Fannar Sigþórsson Kristján Rúnar Gylfason Páll Viðar Gíslason Rene Smed Nielsen Sigurður Brynjar Sigurðsson Vernharð Sigurst Þorleifsson Þorvaldur Sigurðsson Þorvaldur Þorvaldsson
Þjálfari Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
|
Eins og sjá má eru hér á ferðinni margir kappar sem eru í fullu fjöri í dag og koma við sögu hér seinna í pistlinum.
Í átta liða úrslitunum mættust Haukar og FH, Valur og Þór, Afturelding og ÍR og síðan Grótta/KR og KA. Fyrstu leikirnir fóru fram þann 17. apríl, Haukar unnu FH örugglega 26-17, Afturelding lagði ÍR 22-19.Valur - ÞórÁ Hlíðarenda sigraði Valur lið Þórs 29-24. Við leit í gagnasafni Morgunblaðsins finnst ekki umfjöllun um leikinn en þar er þó eftirfarandi samantekt:
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 5:4, 7:4, 9:6, 11:6, 11:7, 14:8. 14:9, 16:9, 18:11, 20:14, 23:14, 25:17, 27:21, 28:23, 29:23.
Mörk Vals: Markús Máni Michaelsson 5/1, Snorri Steinn Guðjónsson 5/1, Sigfús Sigurðsson 5, Bjarki Sigurðsson 5, Freyr Brynjarsson 4, Ásbjörn Stefánsson 3, Einar Gunnarsson 2. Utan vallar: 4 mín.
Mörk Þórs: Páll Viðar Gíslason 11/4, Þorvaldur Þorvaldsson 2, Þorvaldur Sigurðsson 2, Árni Sigtryggsson 2, Aigars Lazdins 2, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 2, Goran Gusic 2, Bjarni G. Bjarnason 1. Utan vallar: 4 mín.Grótta/KR - KAÁ Seltjarnarnesi mættust Grótta/KR og KA í baráttuleik sem fór í framlengingu. Í gagnasafni Morgunblaðsins er umfjöllun blaðamannsins Skúla Unnar Sveinssonar um leikinn:
KA réð við Hlyn og Petersons Það munaði minnstu að KA-mönnum tækist ekki að yfirstíga Hlyn Morthens, markvörð Gróttu/KR, og Aleksandrs Petersons, stórskyttu liðsins, er liðin mættust í fyrsta leiknum í 8 liða úrslitum handknattleiks karla í gærkvöldi. Leikið var á Seltjarnarnesi og fögnuðu gestirnir sigri, 28:27, eftir framlengingu.
Lokamínúturnar í leiknum voru æsispennandi, bæði eftir klukkustundarleik og ekki síður í lok framlengingarinnar. Petersons skoraði á síðustu sekúndunni í leiknum og tryggði framlengingu, stökk upp fyrir utan eftir aukakast og sendi boltann í markið, eins og hann gerði fimmtán sinnum í gærkvöldi. Staðan var 23:23. „Það var ekki skemmtilegt að fara til búningsklefans eftir þetta mark og við höfðum líka klúðrað dálítið í lok leiksins og hleyptum þeim þannig inn í hann þannig að þeir náðu að jafna,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA.
Heimamenn gerðu tvö mörk í fyrri hálfleik framlengingarinnar en gestirnir eitt, en þetta breyttist í síðari hlutanum. Þá gerðu gestirnir fjögur mörk úr jafn mörgum sóknum en heimamenn tvö. Staðan var 26:27 þegar rétt rúm mínúta var eftir og hafði Heiðar Felixson skorað úr víti og komið KA yfir. Það þótti reyndar tíðindum sæta á Seltjarnarnesi í gærkvöldi þegar KA-menn skoruðu úr vítaköstum því þeir fengu alls níu vítaköst, skoruðu úr þremur en Hlynur Morthens varði sex. Frábær dagur hjá honum.
Petersons skoraði þegar tíu sekúndur voru eftir og jafnaði og töldu menn því að aftur þyrfti að grípa til framlengingar. En KA-menn eru þekktir fyrir að vera snöggir að byrja á miðju og það gerðu þeir svo sannarlega. Jónatan Magnússon rakti boltann fram, snéri af sér einn varnarmann og gaf út í hornið á Hrein Hauksson sem stakk sér inn úr horninu og skoraði úr þröngu færi, hans eina mark í leiknum. Jónatan sá síðan til þess að heimamenn næðu ekki að byrja á miðju, hljóp harkalega á leikmann sem ætlaði að hefja leikinn á ný.
Hjá KA átti Egidijus Petkevicius fínan leik í markinu. Vörnin var 3-2-1 misjafnlega áköf en lengstum þokkalega sterk. Heimir Örn Árnason lék vel í sókninni og það sama má segja um Einar Loga Friðjónsson sem kom inn fyrir Heiðmar, sem náði sér ekki á strik í sókninni. Liðið var að öðru leyti jafnt og tíu leikmenn skoruðu í leiknum á meðan sex komust á blað hjá heimamönnum.
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 3:3, 5:3, 5:3, 10:8, 10:10, 11:12, 12:12, 12:13, 14:16, 15:18, 18:19, 18:21, 22:22, 23:23, 24:23, 25:24, 25:26, 26:27, 27:28.
Mörk Gróttu/KR: Aleksandrs Petersons 15, Kristján Þorsteinsson 5, Magnús A. Magnússon 3/2, Atli Þór Samúelsson 2/2, Davíð Ólafsson 1, Gísli Kristjánsson 1. Utan vallar: 12 mínútur (Magnús A. Magnússon fékk þrjár brottvísanir). Auk þess fékk Atli Þór Samúelsson rautt eftir að leikurinn var úti.
Mörk KA: Heimir Örn Árnason 8, Jóhann G. Jóhannsson 4, Heiðmar Felixson 4/2, Einar Logi Friðjónsson 3, Jónatan Þór Magnússon 3/1, Andrius Stelmokas 2, Sævar Árnason 1, Halldór Sigfússon 1, Hreinn Hauksson 1, Baldvin Þorsteinsson 1. Utan vallar: 14 mínútur.
Átta liða úrslitunum var síðan framhaldið 19. apríl og þar kláruðu Haukar FH 28-23 og Afturelding sigraði ÍR 34-33.Þór - ValurÍ Íþróttahöllinni tók Þór á móti Val og þar var jafnt í hálfleik 13-13 en að lokum reyndust Valsarar sterkari og sigruðu 28-32. Það eina sem fannst um leikinn í gagnasafni Morgunblaðsins var meðfylgjandi mynd af Þorvaldi Þorvaldssyni og myndatexti. Þorvaldur Þorvaldsson, línumaður Þórs, kominn í upplagt marktækifæri gegn Snorra Steini Guðjónssyni og samherjum hans í Val í leik liðanna á Akureyri í gær. Einnig kom fram að Þór skoraði 3 mörk úr langskotum, 9 eftir gegnumbrot, 3 úr hraðaupphlaupum, 4 úr hornum, 4 af línunni og 5 úr vítum.
Þórir Tryggvason, ljósmyndari okkar sendi okkur síðan þrjár myndir frá leiknum Þorvaldur Sigurðusson kominn framhjá Snorra Steini og skýtur á Ronald Eratze
 Páll Gíslason í heljargreipum Sigfúsar Sigurðssonar
 Þorvaldur Þorvaldsson svífur inn af línunni og skorar
KA - Grótta/KRÍ KA heimilinu tóku KA menn á móti Gróttu/KR og í gagnasafni Morgunblaðsins er umfjöllun Einars Sigtryggssonar:
KA-menn sneru við blaðinu Alexandrs Petersons, leikmaður Gróttu/KR, skorar eitt fimm marka sinna gegn KA nyrðra í gær. KA-menn höfðu betri gætur á Petersons að þessu sinni en á miðvikudaginn þegar hann skoraði 15 mörk. Gestirnir byrjuðu leikinn mun betur þrátt fyrir að KA tæki Aleksandrs Petersons úr umferð. Þeir skoruðu hvert markið af öðru á meðan KA komst hvergi gegn sterkri vörn þeirra en auk þess var Hlynur Morthens í markinu mjög góður. KA nýtti aðeins tvær af tíu fyrstu sóknum sínum og staðan eftir 13 mínútur var 2:6. Atli Hilmarsson breytti þá yfir í 6-0 vörn og við það komst KA smám saman inn í leikinn. Gróttustrákarnir gáfu þó lítið eftir og héldu þriggja marka forystu þar til í restina. Þeir misnotuðu þá fimm sóknir í röð og KA jafnaði í 10:10 fyrir hlé.
Meðbyr heimamanna hélt áfram í upphafi síðari hálfleiks. Þeir náðu forystu í fyrsta skipti í leiknum 11:10 og eftir tíu mínútur var staðan 13:12. KA klúðraði víti, missti svo mann útaf og Grótta/KR náði að jafna 14:14. KA komst fljótt aftur í tveggja marka forystu og eftir það voru heimamenn með undirtökin allt til loka. Gróttustrákarnir minnkuðu muninn tvívegis í eitt mark en KA hleypti þeim ekki nær enda var vörn þeirra gríðarlega sterk og Petkevicius varði vel. Munurinn var tvö mörk er tvær mínútur lifðu.
Grótta/KR freistaði þess að jafna en kappið var fullmikið og KA jók forystuna í fjögur mörk. Sætur sigur þeirra var staðreynd og fögnuðurinn meðal stuðningsmanna var mikill.
Það var fyrst og fremst sterkur varnarleikur og góð markvarsla sem skóp sigur KA. Þeim tókst að halda Aleksandrs Petersons niðri. Menn skiptust á að koma vel út í hann svo hann komst lítið á flug. Sóknin var ekkert sérstök en Heimir Örn og Heiðmar áttu góða spretti ásamt Stelmokas inná línunni. Baldvin Þorsteinsson kom svo inná síðasta hlutann og skoraði þrjú glæsileg mörk úr vinstra horninu. Heimir Örn Árnason í baráttu gegn Alexander Peterson leikmann Gróttu/KR „Við vorum ekki í standi fyrstu tíu mínúturnar en eftir að við breyttum í 6-0 vörn fór að ganga mun betur. Strákarnir spiluðu vörnina sérlega vel og markvarslan var fín. Mér líst vel á að fá Haukana. Þeir eru með besta lið landsins en við ætlum að reyna að standa í þeim. Við töpuðum fyrir þeim hérna í úrslitaleiknum í fyrra og kannski er ágætt að byrja á útivelli núna. Við erum hvergi hræddir og eigum möguleika gegn þeim,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA. Mörk KA komu þannig: 6 mörk úr langskotum,3 eftir gegnumbrot, 4 úr hraðaupphlaupum, 2 úr hornum, 5 af línunni og 3 úr vítum.
Það voru því Haukar, Valur, Afturelding og KA sem komust í 4 liða úrslitin, öll eftir 2-0 sigur í sínum viðureignum. Í 4 liða úrslitunum mættust annars vegar Haukar og KA og hins vegar Valur og Afturelding. Í næsta pistli fjöllum við um einvígi Hauka og KA. |