Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Byggjum upp stemmingu fyrir úrslitaleikina

19. apríl 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stuðningsmenn AHF hita upp fyrir Valsleikinn

Nú styttist í að úrslitakeppnin 2010 hefjist með allri sinni skemmtun og fjöri. Á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta mætast Valur og Akureyri í Vodafonehöllinni og hefst leikurinn klukkan 16:00.

Stuðningsmenn Akureyrar Handboltafélags á Höfuðborgarsvæðinu ætla að hittast og kynda upp stemminguna fyrir leik. Þeir ætla að hittast á Kebab húsinu, Grensásvegi 3 (við hliðina á BK kjúkling) klukkan 13:00.

Þar verður hægt að kaupa miða á leikinn svo og veitingar frá BK kjúkling og Wilson‘s Pizza á vægu verði. En BK kjúklingur og Wilson‘s Pizza eru einmitt dyggir stuðningsaðilar Akureyrar.

Fríar rútuferðir verða síðan í boði frá Kebab húsinu í Vodafone höllina.

Endurvekjum gömlu góðu úrslitakeppnisstemminguna, þetta verður ekkert nema skemmtilegt.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson