Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sendum Guðmundi og Geir baráttukveðjur til Svartfjallalands



12. ágúst 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Geir og Guðmundur með U-18 á EM

Í gær fóru þeir frændur, Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason með U-18 ára landsliðinu til Svartfjallalands þar sem lokakeppni Evrópumeistaramótsins fer fram. Strákarnir fengu góðan styrk til fararinnar frá fyrirtækjum hér á Akureyri og eru þeim afar þakklátir fyrir stuðninginn.

Íslenska liðið er í riðli með Slóveníu, Sviss og Tékklandi en efstu tvö liðin komast í milliriðla.

Fyrsti leikur liðsins er núna í dag og munum við flytja fréttir af mótinu hér á síðunni eins og við best getum.

Leikir Íslands eru sem hér segir:
Fimmtudagurinn 12. ágúst: Ísland - Slóvenía - kl.11.30 að íslenskum tíma
Föstudagurinn 13. ágúst: Ísland - Sviss - kl.14.00 að íslenskum tíma
Sunnudagurinn 15. ágúst: Ísland - Tékkland - kl.14.00 að íslenskum tíma

Íslenski hópurinn er þannig skipaður:

Markmenn
Brynjar Darri Baldursson, Stjarnan
Sigurður Ingiberg Ólafsson, FH
Aðrir leikmenn
Arnar Birkir Hálfdánarson, Fram
Arnar Daði Arnarsson, Haukar
Árni Benedikt Árnason, Grótta
Bjartur Guðmundsson, Valur
Geir Guðmundsson, Akureyri
Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri
Ísak Rafnsson, FH
Leó Pétursson, HK
Magnús Óli Magnússon, FH
Pétur Júníusson, Afturelding
Rúnar Kristmansson, Stjarnan
Sveinn Sveinsson, Valur
Víglundur Þórsson, Stjarnan
Þráinn Orri Jónsson, Grótta
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson