Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það voru bæði ný og vel þekkt andlit í Höllinni í gær





4. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Öruggur sigur á ÍR í fyrsta æfingaleik

ÍR ingar eru í heimsókn á Akureyri þessa helgina og leika tvo æfingaleiki gegn Akureyri Handboltafélagi. Fyrri leikurinn var í gærkvöldi og var þónokkuð af áhorfendum mætt til að fylgjast með.

Akureyrarliðið byrjaði leikinn af miklum krafti og náði öruggri forystu strax í upphafi en staðan var 11-2 eftir rúmlega 12 mínútna leik. Varnarleikurinn var öflugur þar sem Gulli stjórnaði mönnum eins og hershöfðingi, þar fyrir aftan stóð Sveinbjörn Pétursson klár í markinu.

ÍR ingar komust betur inn í leikinn en staðan í hálfleik var 15-7 fyrir Akureyri.

Geir Guðmundsson fór mikinn í upphafi seinni hálfleiks og skoraði fyrstu fjögur mörk liðsins en allir fengu að spreyta sig og lyktaði leiknum með öruggum sigri Akureyrar 34-20.

Mörk Akureyrar skoruðu: Guðmundur Hólmar Helgason 9, Bjarni Fritzson 8, Oddur Gretarsson 6, Geir Guðmundsson 4, Daníel Einarsson 3, Hörður Fannar Sigþórsson 2, Guðlaugur Arnarsson og Heimir Örn Árnason 1 mark hvor.

Sveinbjörn Pétursson stóð í markinu lengst af og varði 16 skot en Stefán Guðnason kom í markið undir lokin og varði 3 skot.

Auk ofantalinna leikmanna voru í hópnum Jóhann Gunnarsson sem leikur með 2. flokki auk þess sem reynsluboltinn Þorvaldur Þorvaldsson sýndi að hann á nóg eftir á tankinum.

Góðir dómarar leiksins voru þeir Jóhann Gunnar Jóhannsson (Brói) og Sigurður Þrastarson.

Liðin mætast aftur klukkan 13:00 í dag í Íþróttahöllinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson