Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Sveinbjörn átti stórleik í seinni hálfleiknum í kvöld

16. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Tap fyrir Haukum í köflóttum leik

Akureyri lék sinn fyrsta leik í Hafnarfjarđarmótinu í dag ţegar liđiđ mćtti Haukum. Akureyri fór vel af stađ í leiknum, eftir ađ Haukar höfđu veriđ 2-1 yfir kom flottur kafli ţar sem Akureyri breytti stöđunni í 2-5. Haukar jöfnuđu í 5-5 en Akureyri lék vel nćstu mínútur og hafđi fín tök á leiknum, stađan 7-11 ţegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Ţá hrökk allt í baklás og Haukar minnkuđu muninn í eitt mark 10-11 fyrir hálfleik.

Ţrátt fyrir ađ Haukar nćđu ađ jafna međ fyrsta markinu í seinni hálfleik virtist Akureyri hafa góđ tök á leiknum og hélt 2 – 3 marka forystu. Í stöđunni 17-18 fyrir Akureyri lamađist sóknarleikur liđsins algjörlega og Haukar gengu á lagiđ og skoruđu síđustu fimm mörk leiksins og unnu ţví fjögurra marka sigur 22-18.

Spurning hvort sé hćgt ađ kenna ferđaţreytu um hvernig fór en liđiđ lék fínan leik lengst af í fyrri hálfleik en sóknarleikurinn brást illilega í seinni hluta leiksins. Varnarleikurinn var býsna traustur og Sveinbjörn Pétursson átti stórleik í markinu, sérstaklega í seinni hálfleik ţar sem hann varđi 13 skot.

Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 4, Bjarni Fritzson, Heimir Örn Árnason og Hörđur Fannar Sigţórsson 3 mörk hver, Geir Guđmundsson og Valdimar Ţengilsson 2 mörk hvor og Bergvin Gíslason 1 mark.

Á morgun, föstudag leikur Akureyri viđ FH og hefst leikurinn klukkan 20:00 í Íţróttahúsinu viđ Strandgötu. Leikurinn verđur sýndur beint á SportTV.is.

Ţú smellir hér til ađ komast á vef SportTV.is
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson