 Allt komið á fullt hjá Andra Snæ, Einari Loga og Árna Þór
| | 20. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarFréttir af okkar mönnum erlendisNú er nánast lokið fyrstu tveim umferðunum í dönsku 1. deildinni. Tveir fyrrum leikmenn Akureyrar Handboltafélags leika einmitt í 1. deildinni, þeir Andri Snær Stefánsson sem leikur með Odder Håndbold og Einar Logi Friðjónsson sem er með Ribe-Esbjerg HH.
Andri Snær missti af fyrsta leik Odder liðsins þar sem hann var ekki kominn með leikheimild en spilaði allan leik liðsins í 2. umferð þegar Odder vann Fåborg HK með 33 mörkum gegn 31. Andri Snær skoraði tvö mörk í leiknum. Odder er eitt þriggja liða með fullt hús eftir tvær umferðir.
Einar Logi Friðjónsson lék báða leiki síns liðs og skoraði eitt mark þegar Ribe-Esbjerg HH vann Stoholm Håndbold í heimaleik 35-28 í fyrstu umferðinni. Á sunnudaginn tapaði Ribe-Esbjerg HH reyndar á útivelli fyrir Holte IF með einu marki 27-26 þar sem Einar Logi skoraði 2 mörk.
Í Þýskalandi vann lið Árna Þórs Sigtryggssonar DHC Rheinland sinn fyrsta leik í deildinni þegar liðið vann fjögurra marka útisigur 24 – 28 á Melsungen. Árni skoraði eitt mark í leiknum.
Við höfum nú bætt við síðum til að fylgjast með stöðu mála hjá okkar mönnum í Danmörku og Þýskalandi. Linkar á þessar síður eru hægra megin á upphafssíðunni.
Keppnistímabilið er ekki enn hafið hjá Jónatan Magnússyni í Noregi en við reynum að fylgjast með gangi mála þar þegar þar að kemur. |