 Reynsluboltinn Hörður Fannar Sigþórsson stefnir í leikjamet

| | 28. september 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarNýtt á heimasíðunni – tölfræði og sögulegar staðreyndirVið erum svo heppin að eiga dygga lesendur sem fylgjast vel með efni heimasíðunnar. Einn þeirra sendi okkur afar áhugaverða samantekt nú á dögunum en hann hafði farið yfir margvíslega tölfræði sem er hægt að nálgast hér á síðunni og dró fram margar skemmtilegar staðreyndir.
Nú er t.d. hægt að sjá á einum stað yfirlit yfir leikjahæstu menn í sögu félagsins, hver er yngsti leikmaðurinn sem hefur klæðst búningi meistaraflokks og hver er sá elsti. Hverjir hafa verið iðnastir við markaskorun og markvörslu og hverjir hafa gengið harðast fram í vörninni svo eitthvað sé nefnt.
Sömuleiðis er búið að taka saman árangur liðsins á hverju keppnistímabili, stærstu sigra í sögunni, bestu leikmenn og þá efnilegustu.
Skjalið eins og það er nú í upphafi er miðað við lok leiktímabilsins 2009-2010 en ljóst að nokkur met verða slegin á komandi tímabili og ný nöfn komast á toppinn í nokkrum flokkum.
Þannig er ljóst að Hörður Fannar Sigþórsson mun að öllum líkindum verða fyrstur manna til að ná 100 leikjum fyrir félagið en þá er einungis miðað við leiki í opinberum keppnum, deild, bikar og deildarbikar. Ef allt fer eins og ætlað er þá setur Hörður Fannar met í fyrsta heimaleiknum sem verður 7. október næstkomandi þegar Afturelding kemur í heimsókn.
Hægra megin á forsíðunni er þessi mynd sem er tengill til að opna tölfræðistaðreyndasíðuna. |