 Merkisdagur hjá Herði Fannari, gerum hann sem eftirminnilegastan
| | 7. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri – Afturelding í textalýsinguFyrsti heimaleikjadagurinn er runninn upp og ekkert annað í stöðunni en að berjast fyrir tveim stigum og fylgja eftir góðri byrjun frá síðasta leik.
En hvað um það, þá má reikna með hörkuleik enda Afturelding mikið stemmingslið sem okkar menn þurfa að taka föstum tökum.
Reynsluboltinn Hörður Fannar Sigþórsson nær þeim merka áfanga í dag, fyrstur manna að spila 100. leikinn fyrir Akureyri Handboltafélag og ástæða til að allir taki þátt í því að gera það að eftirminnilegum viðburði. Hörður Fannar í leik á Opna Norðlenska mótinu 2010
 Hörður Fannar í leik gegn Val á fyrsta tímabili Akureyrar Handboltafélags 2006 Leikurinn hefst klukkan 19:00 en ástæða til að hvetja fólk til að koma tímanlega því búast má við fjölmenni.
Leikurinn í beinni textalýsingu Við gerum ráð fyrir að halda okkar vana og vera með leikinn í beinni textalýsingu þannig að þeir sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með hér á heimasíðunni. Beina lýsingin virkar þannig að hún opnast í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 20 sekúndna fresti.
Smelltu hér til að fylgjast með beinu lýsingunni. |