 HK menn sýndu Fram klærnar í síðasta leik
| | 12. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarBúið að tímasetja bikarleikinn gegn HK 19. okt í DigranesiNú er komið á hreint að bikarleikur HK og Akureyrar verður þriðjudaginn 19. október klukkan 18:30 í Digranesinu í Kópavogi. Það verður því býsna strangt prógram hjá Akureyrarliðinu næstu daga, deildarleikur gegn Fram á laugardaginn, bikarleikur gegn HK á þriðjudag og að öllu óbreyttu deildarleikur gegn Haukum á fimmtudag. Þrír leikir á sex dögum en reyndar eru uppi raddir um að færa Haukaleikinn hugsanlega aftur um einn dag en það skýrist væntanlega fljótlega.
Allavega er ljóst að leið strákanna liggur í Kópavoginn á þriðjudaginn og þrátt fyrir stórsigur á HK í N1 deildinni á dögunum er ljóst að sá leikur verður hrikalega erfiður. HK ætlar ekki að láta niðurlægja sig aftur eins og þeir sýndu í síðustu viku þegar HK vann sannfærandi sigur á Fram.
Við förum betur yfir leikinn þegar nær dregur, næsta verkefni liðsins er útileikur gegn Fram á laugardaginn en hann verður einmitt í beinni útsendinu á RÚV. |