 Höddi fær allavega ekki spjald í Haukaleiknum!
| | 21. október 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarHörður Fannar verður í leikbanni gegn HaukumHörður Fannar Sigþórsson verður í banni í leik Akureyrar og Hauka á föstudaginn. Hörður fékk rautt spjald á lokaandartökum leiksins gegn Fram síðastliðinn laugardag þegar hann stöðvaði sókn Framara í fæðingu. Aganefnd HSÍ hefur fellt sinn dóm og eins og við var að búast fékk Hörður Fannar eins leiks bann.
Guðmundur Árni Ólafsson hinn snjalli hornamaður Hauka tekur sömuleiðis út bann í leiknum en hann fékk rautt spjald á lokasekúndum leiks Aftureldingar og Hauka síðstliðinn fimmtudag.
Á heimasíðu HSÍ er að finna svohljóðandi úrskurð aganefndar:
Fundur Aganefndar HSÍ, 19. október 2010 Mættir voru Gunnar K. Gunnarsson, Rögnvald Erlingsson og Vala Valtýsdóttir. Eftirtalin mál voru fyrir fundinum og voru afgreidd:- Guðmundur Árni Ólafsson leikmaður Hauka fékk útilokun með skýrslu vegna brots í leik Aftureldingar og Hauka í M.fl.ka. 14.10.2009. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
- Lárus Mikael leikmaður Harðar fékk útilokun með skýrslu í leik Harðar og Stjörnunnar í M.fl.ka. 16.10.2009. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
- Yngvi Ásgeirsson leikmaður KA 2 fékk útilokun með skýrslu í leik Fjölnis og KA 2 í 3.fl.ka. 17.10.2009. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
- Davíð Óskarsson leikmaður ÍBV fékk útilokun með skýrslu í leik IBV og ÍR í M. fl.ka. 17.10.2010. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
- Hörður Fannar Sigþórsson leikmaður Akureyrar fékk útilokun með skýrslu í leik Fram og Akureyrar í M. fl.ka. 16.10.2010. Niðurstaða aganefndar er að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann.
Önnur mál lágu ekki fyrir. Gunnar K. Gunnarsson formaður. |