Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Andri Snćr, Einar Logi, Jónatan og Árni standa í stórrćđum ţessa dagana







15. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fréttir af okkar mönnum í útlöndum

Ţađ er orđiđ nokkuđ síđan viđ birtum fréttir af okkar mönnum í útlöndum og skal nú bćtt lítillega úr ţví.

Danmörk
Í dönsku 1. deildinni heldur sigurganga Odder liđsins áfram. Eftir níu umferđir eru Andri Snćr og félagar á toppi deildarinnar međ 15 stig, ţrem stigum á undan nćstu liđum. Í gćr (sunnudag) valtađi Odder yfir botnliđiđ, Frederikshavn FI, međ 41 mörkum gegn 20 ţar sem Andri Snćr skorađi ţrjú mörk og fiskađi vítakast.


Andri Snćr (númer 14) og félagar í Odder fagna marki í leik gćrdagsins

Um síđustu helgi vann Odder góđan útisigur gegn Kaupmannahafnarliđinu Holte 25-32.

Einar Logi Friđjónsson hefur veriđ meiddur og misst af tveim síđustu leikjum Ribe-Esbjerg sem er nú í 8. sćti međ 10 stig. Ţeir félagarnir Andri Snćr og Einar Logi mćtast einmitt í nćstu umferđ, á föstudaginn ţegar Odder mćtir í heimsókn til Ribe-Esbjerg.

Noregur
Í Noregi vinnur Jónatan Magnússon og liđ hans Kristiansund hvern stórsigurinn á fćtur öđrum í norsku 2. deildinni. í gćr tók Kristiansund liđ Vikhammer í bakaríiđ 41-16. Á heimasíđu liđsins er ekki greint frá markaskorun en ljóst ađ yfirburđir Kristiansund liđsins voru algjörir og ljóst ađ Jónatan hefur stýrt leik liđsins af öryggi: Alle spilte mye idag, med godt hell. Jonatan er sjefen og spiller som vanlig godt.

Nćsta leik ţar á undan sem var útileikur gegn Holte HK unnu Jonni og félagar ađ sama skapi stórt, 20-45. Í ţeim leik skorađi Jónatan 6 mörk og svo viđ vitnum aftur í heimasíđu liđsins ţá stjórnar Jonni algjörlega leik liđsins: Ellers sĺ er som vanlig Jonatan sjefen ute pĺ banen. Han styrer kampen som han vil og som Gunnar vil. Hér er ađ sjálfsögđu átt viđ Gunnar Magnússon ţjálfara liđsins


Gunnar Magnússon ţjálfari, Eivind Berg og Jónatan Ţór Magnússon

Kristiansund er međ fullt hús stiga eftir sex leiki en nćsta sunnudag, 21. nóvember spila ţeir viđ Kolstad á heimavelli sem eru efstir, sömuleiđis međ fullt hús en hafa spilađ átta leiki.

Ţýskaland
Í ţýsku Bundesligunni gengur brösuglega hjá Árna Sigtryggssyni og liđi hans DHC Rheinland en liđiđ hefur ađeins fjögur stig eftir ellefu umferđir. Ţann 4. nóvember unnu ţeir mikilvćgan útisigur á Friesenheim 28-29 ţar sem Árni skorađi tvö mörk. Í nćsta leik töpuđu ţeir síđan illa fyrir Lübbecke 33-22 og nú síđast tapađi liđiđ á heimavelli fyrir Lemgo 19-26. Árni var ekki á međal markaskorara í ţessum leikjum.

Rheinland situr í sextánda sćti deildarinnar en mćta í nćsta leik liđi HBW Balingen sem er í 12. sćti, sá leikur er nćstkomandi laugardag.


Árni í leik međ DHC-Rheinland og einnig má greina félaga hans Sigurberg Sveinsson

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson