 Guðmundur Hólmar var öflugur og Sveinbjörn traustur að vanda

| | 16. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarSigurgangan heldur áfram – góður sigur á AftureldinguÞað fylgir alltaf viss spenna bikarleikjum enda mega menn ekkert misstíga sig í þeim því þar með er úti um þátttöku í keppninni. Það virtist vera dálítill taugatitringur í báðum liðum í upphafi leiks, jafnt á öllum tölum upp í stöðuna 7-7 en þá loks náði Akureyri að hrista gestina úr Mosfellsbænum af sér og fór með fjögurra marka forystu í hálfleik 13-9. Vörnin fór að beita sér af krafti og Sveinbjörn varði vel. Guðmundur Hólmar Helgason sýndi stórbrotinn leik og skoraði sex síðustu mörk Akureyrarliðsins. Mosfellingar réðu ekkert við hann og fuku tveir útaf þegar þeir reyndu án árangurs að hanga á Guðmundi. Guðmundur var óstöðvandi í lok fyrri hálfleiks, sex mörk í röð Aftureldingarmenn voru þó ekkert hættir og komu sterkir inn í seinni hálfleikinn. Þeir skoruðu fyrstu tvö mörkin í hálfleiknum og náðu að minnka muninn niður í eitt mark 17-16. Þá tók Oddur Gretarsson sig til eftir að hafa haft hægt um sig og skoraði þrjú mörk í röð, staðan orðin 20-16 og eftir það var ekki litið um öxl. Mosfellingar virtust algjörlega búnir á því og Akureyri tók leikinn gjörsamlega í sínar hendur. Vörnin og Sveinbjörn skelltu í lás og hvert hraðaupphlaupsmarkið rak annað. Daníel Einarsson fór þar fremstur í flokki og ungu strákarnir Bergvin og Hlynur Matthíassynir sýndu að þeir kunna ýmislegt fyrir sér. Þá kom Stefán meistari Guðnason í markið á lokakaflanum og hann brást ekki frekar en fyrri daginn og varði m.a. tvö dauðafæri Mosfellinga með tilþrifum. Daníel Einarsson og Stefán Guðnason létu heldur betur að sér kveða undir lok leiksins Leiknum lauk því með yfirburðasigri, 30-20 og Akureyri komið í 8-liða úrslit bikarkeppninnar eftir tveggja ára fjarveru á þeim vígstöðvum.
Mörk Akureyrar: Guðmundur Hólmar Helgason 8, Heimir Örn Árnason 4, Oddur Gretarsson 4, Daníel Einarsson 4, Geir Guðmundsson 3, Hörður Fannar Sigþórsson 2, Guðlaugur Arnarsson 2, Bergvin Gíslason, Bjarni Fritzson og Hlynur Elmar Matthíasson 1 mark hver. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 19 og Stefán Guðnason 3.
Mörk Aftureldingar: Eyþór Vestmann 4, Bjarni Aron Þórðarson 4, Arnar Theódórsson 3, Aron Gylfason 3, Jón Andri Helgason 2, Daníel Jónsson 2, Haukur Sigurvinsson og Pétur Júníusson 1 mark hvor.
Hafþór Einarsson reyndist Akureyringum erfiður og varði 17 skot, þar af eina vítakastið sem var dæmt í leiknum. Kristófer Guðmundsson varði 2 skot. Atli Hilmarsson er að gera frábæra hluti með Akureyrarliðið Nú er bara að bíða og sjá til hvaða mótherja Akureyri fær í næstu umferð Eimskipsbikarsins. Næsti leikur liðsins er hins vegar útileikur gegn FH í Kaplakrikanum og verður hann sýndur í beinni útsendingu á RÚV laugardaginn 20. nóvember.
Sjá fleiri myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum. |