 Bergvin Gíslason og strákarnir fá loksins að spila leik
| | 17. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Leikur hjá strákunum á föstudagNú hefur fengist staðfest að Akureyrarstrákarnir í 2. flokki spila leik á föstudagskvöldið, klukkan 20:30. Það er FH sem kemur norður og veður leikið í Íþróttahöllinni. Akureyrarliðið hefur aðeins leikið einn leik í deildinni en þá unnu þeir góðan sigur á Stjörnunni 28-22.
FH er búið að spila fjóra leiki og er með fullt hús, 8 stig í efsta sæti deildarinnar. Raunar er lítið að marka stöðuna í deildinni því liðin hafa leikið svo mismarga leiki, sum fimm leiki á meðan Akureyri og ÍBV hafa einungis spilað einn leik. Staðan í deildinni er sem hér segir:
| Nr. | Félag | Leikir | U | J | T | Mörk | Nettó | Stig | | 1. | FH | 4 | 4 | 0 | 0 | 123:109 | 14 | 8 | | 2. | Stjarnan | 5 | 3 | 0 | 2 | 149:146 | 3 | 6 | | 3. | Selfoss 1 | 5 | 2 | 0 | 3 | 151:160 | -9 | 4 | | 4. | Haukar 1 | 3 | 2 | 0 | 1 | 88:80 | 8 | 4 | | 5. | Akureyri | 1 | 1 | 0 | 0 | 28:22 | 6 | 2 | | 6. | Valur 1 | 2 | 1 | 0 | 1 | 64:60 | 4 | 2 | | 7. | ÍBV | 1 | 0 | 0 | 1 | 30:33 | -3 | 0 | | 8. | Fram | 3 | 0 | 0 | 3 | 86:93 | -7 | 0 | | 9. | ÍR | 2 | 0 | 0 | 2 | 56:72 | -16 | 0 |
 Jóhann Gunnarsson í leik með 2. flokki
 Halldór Tryggvason í leiknum gegn Stjörnunni Við hvetjum stuðningsmenn til að koma og hvetja strákana því þetta er í rauninni upphitun fyrir laugardagsleikinn þegar meistaraflokkurinn sækir FH inga heim í Kaplakrikann, sjónvarpsleikur umferðinnar! |