 Atli segir sína menn vera í góðu standi fyrir leikinn
| | 18. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarAtli Hilmarson: Ágætlega bjartsýnn fyrir FH leikinnÍ nýjasta tölublaði Vikudags ræðir Þröstur Ernir Viðarsson, blaðamaður við Atla Hilmarsson þjálfara Akureyrar um laugardagsleikinn gegn FH ingum:
„Við erum á fínu skriði og þessi leikur leggst vel í mig. Ég held að það skipti ekki öllu máli hvort við séum að mæta FH á útivelli eða Aftureldingu á heimavelli. Ef við náum okkar leik þá erum við í góðum málum.
Við ætlum bara að halda okkar striki, ég veit alveg hvað þessir strákar geta og þeir eru í fínu standi. Það hefur hjálpað okkur heilmikið að við erum ekki að glíma við nein alvarleg meiðsli.
Það er ekkert annað í myndinni en að halda sigurgöngunni áfram, bæta okkar leik og hugsa um okkur fyrst og fremst. Ef við náum að leika áfram eins og við höfum gert í upphafi móts eru okkur allir vegir færir,“ segir Atli.
Við minnum svo enn og aftur á að leikur FH og Akureyrar hefst klukkan 15:45 á laugardaginn en útsending RÚV hefst klukkan 15:30. |