Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Spennandi handboltadagur í dag

20. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: FH – Akureyri beint í sjónvarpinu kl. 15:45

Það þarf trúlega varla að minna stuðningsmenn á að í dag fer fram stórleikur í N1 deild karla þegar Akureyri sækir FH heim í Kaplakrika. Sjónvarpið sýnir leikinn í beinni útsendingu og ættu allir að geta fylgst með þar. Af þeim sökum verðum við ekki með beina textalýsingu frá leiknum en bendum tölvunotendum á að hægt er að fylgjast með útsendingunni á vef rúv.

En að sjálfsögðu hvetjum við alla stuðningsmenn Akureyrar á höfuðuborgarsvæðinu til að drífa sig á leikinn, eins og við höfum bent á þá er frítt á leikinn fyrir þá sem geta framvísað kassakvittun úr Bónus og gildir það fyrir alla fjölskylduna.

Samkvæmt okkar heimildum verður hægt að kaupa sérstakar stuðningsmannatreyjur Akureyrar liðsins á leiknum.


Treyjurnar fást í öllum stærðum

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson