 Að sjálfsögðu stefnum við á deildarbikarinn
| | 24. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarDeildarbikarinn 2010 verður milli jóla og nýársLíkt og undanfarin þrjú ár verður efnt til Deildarbikarkeppni HSÍ á milli jóla og nýárs Leikið verður í Íþróttahúsinu í Strandgötu í Hafnarfirði eins og síðasta ár.
Keppnisrétt hafa fjögur efstu lið í N1 deildum karla og kvenna miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól. Ef liðin hafa ekki öll leikið jafnmargar umferðir þá verður miðað við þá umferð sem öll liðin hafa lokið.
Leikjaplanið í ár er eftirfarandi: Mánudagur 27.desember 2010 Deildarbikar kvenna - kl.16.00 - Undanúrslit Deildarbikar kvenna - kl.17.15 - Undanúrslit Deildarbikar karla - kl.19.30 - Undanúrslit Deildarbikar karla - kl.21.15 - Undanúrslit
Þriðjudagur 28.desember 2010 Deildarbikar karla - kl.18.15 - Úrslit Deildarbikar kvenna - kl.20.00 - Úrslit
Miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri. Aðgöngukort HSÍ, A og B, gilda á leikina en ekki C kortin.
Síðasta ár léku Akureyri og Haukar til úrslita í karlaflokki og eftir æsispennandi lokamínútur unnu Haukar eins marks sigur, 25-24 með marki á síðustu sekúndu leiksins. Sjá umfjöllun um úrslitaleikinn.
Í kvennaflokki sigraði Fram hins vegar Hauka, 27-25. |