Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Páll stóđ fyrir sínu um helgina

29. nóvember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Tveir góđir sigrar um helgina

Strákarnir áttu tvo útileiki um helgina, lagt var af stađ suđur klukkan 2 á föstudegi og stefnan sett á Hlíđarenda ţar sem keppt var viđ Valsara klukkan 21:30.

Akureyri byrjađi mun betur og komst í 1-6 og tóku Valsmenn ţá leikhlé. Eitthvađ virđist rćđa ţjálfara ţeirra hafa skilađ sér ţví Valsarar fóru ađ vinna sig hćgt og bítandi inn í leikinn og ţegar fyrri hálfleikur var búinn var stađan 14-16 Akureyri í vil.

Í seinni hálfleik tóku Akureyringar leikinn í sínar hendur og náđu mest 11 marka forustu og uppskáru ađ lokum öruggan sigur 26-34. Páll var ađ verja vel í markinu og Bergvin var öruggur í horninu, skorađi 9 mörk. Ţá kom Oddur Gretarsson einnig sterkur af bekknum međ 5 mörk. Vörnin í seinni hálfleik var mjög góđ hjá Akureyri og ţrátt fyrir ađ dómarar leiksins hafi rekiđ Akureyringa óspart útaf spilađi liđiđ vel einum fćrri. Alls fengu Akureyringar 8 sinnum tveggja mínútna brottrekstur, ţ.a.m. fékk Jón Heiđar sína ţriđju brottvísun eftir 40 mínútna leik.


Bergvin skorar í leik gegn Stjörnunni

Seinni leikur helgarinnar var á erfiđum útivelli Selfyssinga og vissu Akureyringar ađ ţeir ţyrftu ađ eiga toppleik til ţess ađ sigra.

Selfoss byrjađi leikinn betur og komst í 5-2 en Akureyringar voru pollrólegir, spiluđu hörkugóđa vörn og skoruđu ţrjú hrađupphlaupsmörk í röđ og jöfnuđu í 5-5. Akureyri náđi síđan forustunni og leiddi 11-8 í hálfleik. Í seinni hálfleik héldu Akureyringar sama dampi og međ flottri vörn og yfirveguđum sóknarleik uppskáru ţeir ađ lokum 5 marka sigur 27-32.

Akureyri leiddi allan seinni hálfleikinn međ 4-6 mörkum og voru Selfyssingarnir aldrei líklegir til ţess ađ jafna. Eins og í leiknum kvöldiđ áđur var Páll ađ verja mjög vel og vörnin frábćr. Hlynur og Ásgeir fastir fyrir í miđju varnarinnar og Bergvin og Jóhann tóku vel á sterkum skyttum Selfyssinga. Sóknarlega hélt liđiđ ró og spilađi sín kerfi sem gengu vel upp. Ólafur, Jóhann og Bergvin voru góđir í hornunum og Jón Heiđar stýrđi liđinu vel af miđjunni. Jóhann, Ásgeir og Hlynur spiluđu vel fyrir utan og Halldór var ađ finna sig á línunni. Valţór Atli átti líka góđar innkomur á vítapunktinn og skorađi úr öllum 5 vítum Akureyrar af miklu öryggi.

Ţađ má segja ađ allir í liđinu hafi spilađ vel og var ţetta eflaust besti leikur liđsins ţađ sem af er tímabili en strákarnir eru međ fullt hús eftir fjóra leiki.


Ólafur var öflugur í horninu líkt og hér gegn Stjörnunni

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson