 Við óskum Sveinbirni, Bjarna og Oddi til hamingju


| | 2. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarSveinbjörn, Bjarni Fritzson og Oddur valdir í A landslið karlaHSÍ tilkynnti í dag A-landsliðshóp Íslands sem tekur þátt í World Cup mótinu í Svíþjóð dagana 7. og 8. desember. Þrír leikmenn Akureyrar Handboltafélags eru í hópnum, markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson ásamt hornamönnunum Bjarna Fritzsyni og Oddi Gretarssyni.
Bjarni á að baki 39 A-landsleiki og hefur skorað í þeim 42 mörk, Oddur hefur leikið 7 A-landsleiki og skorað 16 mörk. Sveinbjörn er að stíga sín fyrstu skref með A-landsliðinu en á að baki fjölmarga landsleiki með yngri landsliðum Íslands.
Við óskum þeim Sveinbirni, Bjarna og Oddi að sjálfsögðu til hamingju með þessa viðurkenningu á frábærri frammistöðu þeirra það sem af er tímabilsins.
Á World Cup 2010 taka þátt auk Íslands Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Ísland leikur þriðjudaginn 7. desember við Svíþjóð kl. 19:30 að íslenskum tíma en mætir síðan annað hvort Noregi eða Danmörku daginn eftir kl. 17:30.
Þar sem ekki er um að ræða alþjóðlega leikviku eiga ekki allir leikmenn heimangengt. Björgvin Páll Gústavsson, Hreiðar Levý Guðmundsson og Þórir Ólafsson eiga allir leiki með sínum félagsliðum, Ólafur Stefánsson og Vignir Svavarsson fá frí af persónulegum ástæðum og Guðjón Valur Sigurðsson er að stíga uppúr meiðslum.
Landsliðshópurinn er eftirfarandi:
Markmenn: Birkir Ívar Guðmundsson – 138 landsleikir - Haukar Sveinbjörn Pétursson – Nýliði – Akureyri
Aðrir leikmenn: Alexander Petersson - 107 landsleikir – Fuchse Berlin Arnór Atlason - 97 landsleikir – AG Köbenhavn Arnór Þór Gunnarsson – 8 landsleikir – TV Bittenfeld Aron Pálmarsson - 25 landsleikir – THW Kiel Atli Ævar Ingólfsson – Nýliði - HK Ásgeir Örn Hallgrímsson - 132 landsleikir – Hannover-Burgdorf Bjarni Fritzson – 39 landsleikir – Akureyri Ingimundur Ingimundarson - 79 landsleikir – AaB Oddur Gretarsson – 7 landsleikir – Akureyri Róbert Gunnarsson - 172 landsleikir - Rhein Neckar Löwen Sigurbergur Sveinsson - 27 landsleikir - Rheinland Snorri Steinn Guðjónsson - 166 landsleikir – AG Köbenhavn Sturla Ásgeirsson – 53 landsleikir – Valur Sverre Jakobsson - 94 landsleikir - Grosswallstadt |