Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bjarni Fritzson og félagar eiga möguleika á að komast í undanúrslitin í dag

5. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Víkingur - Akureyri í beinni textalýsingu

Í dag klukkan 16:00 eigast Víkingur og Akureyri við í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikið er á heimavelli Víkinga í Víkinni og ætlum við að reyna að þjóna fjölmörgum stuðningsmönnum sem heima sitja með því að halda úti beinni textalýsingu frá leiknum. Við verðum með fulltrúa okkar á staðnum sem mun lýsa því sem fyrir augu ber símleiðis og við komum upplýsingunum jafnóðum á netið.

Við reiknum með því að lýsingin hefjist rétt fyrir leikinn sem hefst eins og áður segir klukkan 16:00.

Eins og vanalega þá opnast lýsingin í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 15 sekúndna millibili.

Smelltu hér til að opna beinu lýsinguna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson