Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það mun mikið mæða á Guðlaugi Arnarssyni í dag

12. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Fram í beinni textalýsingu

Það er leikur af stærri gerðinni í Íþróttahöllinni í dag, sannkallaður toppslagur í N1-deild karla í handbolta. Þar mætast tvö efstu lið deildarinnar Akureyri og Fram en bæði hafa verið á miklu skriði í vetur jafnt í deildinni sem og í Eimskipsbikarnum.

Það er alveg hægt að lofa miklum hasarleik, Akureyrarliðið er ekkert á þeim buxunum að bregða út af vananum með að skemmta stuðningsmönnum sínum með dramatík og háspennu þannig að það verður örugglega þess virði að mæta í Höllina. Þeir sem upplifðu síðasta heimaleik gegn HK geta vitnað um fjörið í troðfullri Höll.
Leikurinn hefst í dag klukkan 16:30.


Hörður Fannar og Gulli ganga vasklega gegn Jóhanni Gunnari Einarssyni Framara

Bein textalýsing frá leiknum
Fyrir þá stuðningsmenn sem ekki komast í Höllina verðum við með beina textalýsingu frá leiknum hér á síðunni.
Eins og vanalega þá opnast lýsingin í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 15 sekúndna millibili.

Smelltu hér til að opna beinu lýsinguna.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson