Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Frábær tíðindi að SportTV sé komið á lappirnar á nýjan leik

16. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

SportTV.is komið af stað á ný

Þau gleðilegu tíðindi bárust á dögunum að SportTV er komið af stað á ný eftir að starfsemin hefur legið niðri um tíma. SportTV ætlar að sýna beint frá leik FH og HK í kvöld en sá leikur hefst klukkan 19:30. Samkvæmt frétt á SportTV.is ætla þeir að sýna frá deildarbikarnum sem hefst 27. desember en bæði Akureyri og Fram hafa tryggt sér þátttökurétt í deildarbikarnum en úrslit leikja í kvöld skera úr um hvaða lið verða til viðbótar.

Leikur Hauka og Akureyrar í kvöld verður hins vegar sýndur beint á Haukar-TV og hefst leikurinn klukkan 18:30.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson