Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Palli og félagar sáu um að 83 strákarnir fengu jólaboltann sinn

27. desember 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar

Lifir í gömlum glæðum - jólahandbolti 83 árgangsins

Það fylgir venjulega jólahaldinu að í bæinn koma brottfluttar handboltakempur og þá er upplagt að smala saman gömlum liðum og athuga hvort lifir enn í gömlum glæðum. Einn slíkur leikur fór fram á öðrum degi jóla þegar nokkrar kempur fæddar árið 1983 rifjuðu upp hvað Jóhannes Bjarnason kenndi þeim fyrir nokkrum árum.

Að vísu settu verður og færð strik í reikninginn þannig að ekki komust allir til leik og brugðu menn á það að ráð að kaupa nokkru yngri markvörð sem er nú búsettur í Danaveldi en dvelur þessa daga hér í bænum í jólastemmingunni.

Mótherjar ´83 liðsins að þessu sinni voru nokkrir liðsmenn 2. flokks Akureyrar. Ekki höfum við nákvæmar upplýsingar um úrslit leiksins en grunur leikur á að ´83 árgangurinn hafi sigrað með nokkurra marka mun.


Strákarnir sem skipuðu lið ´83 árgangsins


Strákarnir úr 2. flokki Akureyrar sem léku gegn þeim

Þórir Tryggvason sendi okkur þessar myndir frá atganginum.

Smelltu hér til að skoða allar myndirnar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson