Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það verður forvitnilegt að fylgjast með Oddi á spjalli við Anton Rúnars á INN



19. janúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Oddur Gretarsson í sjónvarpsviðtali á INN í kvöld

Oddur Gretarsson er eðlilega mikið í fjölmiðlum þessa dagana. Okkur hafa borist fréttir af því að í kvöld (miðvikudagskvöld) verði Oddur Gretarsson í viðtali í handboltaþættinum „Harpix í Hárið“ sem er sýndur á sjónvarpsstöðinni INN. Þegar hafa verið sendir út tveir þættir af Harpix í Hárið sem er kynntur sem öðruvísi þáttur um handbolta og að þar sé skyggnst á bak við tjöldin í handboltanum.

Þáttastjórnandi er enginn annar en Anton Rúnarsson, fyrrum leikmaður Akureyrar og með honum er Arnar Daði Arnarsson. Það verður fróðlegt að sjá hvernig meistari Oddur tekur sig út í þættinum en viðtalið hefur væntanlega verið tekið upp áður en hann hélt til Svíðþjóðar með landsliðinu. Þátturinn fer í loftið klukkan 21:00 á INN í kvöld.

Eins og áður segir þá er búið að senda út tvo þætti og er hægt að horfa á þá á vefnum með því að smella á dagsetningarnar hér á eftir:

Þáttur frá 12. janúar Gestir: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Þorgerður Atladóttir. Auk þess er rætt við ýmsa leikmenn íslenska karlalandsliðsins svo og rússajeppann Sigfús Sigurðsson.

Þáttur frá 5. janúar Gestir: Sturla Ásgeirsson og Logi Geirsson.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson