 Atli og Bjarni eru klárir í slaginn í dag

| | 3. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri – Valur í beinni textalýsinguÞá er loksins kominn leikdagur hjá okkur og tilhlökkunin ekki lítil hjá leikmönnum og stuðningsmönnum. Valsmenn mæta sem gestir okkar í Höllina en þeir voru á góðri siglingu áður en hlé var gert á N1 deildinni.
„Það er allt annar bragur á Valsliðinu núna en var í haust. Það er kominn mun meiri stöðuleiki í liðið núna eftir að Hlynur Morthens kom aftur inn í markið hjá þeim. Valur er á uppleið og liðið er mun betra en staða liðsins í deildinni segir til um. Það er alveg á hreinu að við þurfum að vera á tánum til þess að klára þennan leik,” segir Atli Hilmarsson í viðtali við Vikudag.
Í Morgunblaðinu í dag er vitnað í Bjarna Fritzson um leikinn: „Ég er mjög spenntur fyrir þessum leik, enda er ég að mæta Stulla (Sturlu Ásgeirssyni), einum af mínum bestu vinum. Bræður munu berjast þar en þetta er í fyrsta skipti sem við mætumst á handboltavellinum. Hann nefnilega gerði sér upp meiðsli í síðasta leik,“ segir Bjarni glottandi og hann býst við að Valsarar hafi nýtt fríið vel.
Þarna er Bjarni að vitna í fyrri leik liðanna frá því 4. nóvember.
Bein textalýsing frá leiknum
Fyrir þá stuðningsmenn sem ekki komast í Höllina verðum við með beina textalýsingu frá leiknum hér á síðunni.
Eins og vanalega þá opnast lýsingin í sérstökum glugga og uppfærist sjálfkrafa á 15 sekúndna millibili.
Smelltu hér til að opna beinu lýsinguna. |