Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Reynsluboltinn Guðlaugur verður á sínum stað

14. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri – FH í beinni textalýsingu

Í kvöld fer fram einn stærsti leikur í sögu Akureyrar Handboltafélags, sæti í úrslitaleik Bikarkeppninnar er í húfi og það yrði í fyrsta sinn í sögu félagsins sem þeim áfanga yrði náð. Að sjálfsögðu vonumst við til að bæjarbúar flykkist í Höllina og styðji sína menn til sigurs, það er varla hægt að hugsa sér betri skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Fyrir þá stuðningsmenn sem ekki eiga heimangengt bendum við á beina textalýsingu hér á heimasíðunni. Eins og vant er þá opnast hún í sérstökum glugga og uppfærist sjálfvirkt með 15 sekúndna millibili.
Smelltu hér til að fylgjast með textalýsingunni!


Einnig hyggst SportTV.is vera með beina útsendingu frá leiknum og ætti að vera hægt að fylgjast með útsendingu þeirra með því að smella hér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson