Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Áhorfendur geta hlakkað til fimmtudagsins

15. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stund milli stríða: Annar leikur gegn FH á fimmtudaginn

Það var mikill hasar og brjáluð stemming í Höllinni á mánudaginn þegar Akureyri sló FH út úr bikarnum. Akureyringar eru hvergi nærri hættir og ætla sér ekkert nema sigur og ekki þarf að efast um fyrirætlanir FH inga.

„Það verður algjört stríð á fimmtudaginn. FH ingarnir munu mæta brjálaðir til leiks og við munum svara því enda ætlum við okkur að vera áfram á toppi deildarinnar. Við þurfum því að gróa hratt og vera klárir, fá röddina aftur fyrir fimmtudaginn,“ sagði Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyrar handboltafélags.

Leikurinn verður á fimmtudaginn klukkan 19:00.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson