 Við fáum allavega fjóra heimaleiki í lokahlutanum
| | 16. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarSpáð í þriðja hluta N1 deildarinnarÁ fimmtudaginn lýkur öðrum hluta N1 deildarinnar en staða liðanna eftir fimmtudagsleikina ræður því hvaða leikir verða heimaleikir og hverjir útileikir í þriðja hluta deildarinnar. Efstu fjögur liðin fá fjóra heimaleiki og þrjá útileiki á meðan neðstu fjögur liðin fá þrjá heimaleiki og fjóra útileiki.
Hvernig sem fimmtudagsleikirnir fara liggur þó fyrir að Akureyri verður í 1. sæti, Fram í 2. sæti, Haukar verða í 5. sæti og Valur í því 6. Ljóst er að staða liðanna verður sem hér segir:
1 Akureyri 2 Fram 3 FH eða HK 4 HK eða FH 5 Haukar 6 Valur 7 Afturelding eða Selfoss 8 Selfoss eða Afturelding
Fyrirfram ákveðið kerfi er notað til að raða upp leikjunum í þriðja hlutanum og samkvæmt því verða leikir Akureyrar sem hér segir:
1. umferð útileikur gegn liði 4 (FH eða HK) mánudaginn 21. febrúar kl. 18:30 2. umferð heimaleikur gegn Val (lið 6) fimmtudaginn 3. mars kl. 19:00 3. umferð útileikur gegn liði nr. 8 (Selfoss eða Afturelding) fimmtudaginn 17. mars kl. 18:30 4. umferð heimaleikur gegn Haukum (lið 5) fimmtudaginn 24. mars kl. 19:00 5. umferð útileikur gegn liði nr. 3 (FH eða HK) mánudaginn 28. mars kl. 19:30 6. umferð heimaleikur gegn liði nr. 7 (Afturelding eða Selfoss) fimmtudaginn 31. mars kl. 19:30 7. umferð heimaleikur gegn Fram (lið 2) fimmtudaginn 7. apríl kl. 19:30
Það er sem sé öruggt að Akureyri fær heimaleiki gegn Val, Haukum og Fram en útileiki gegn FH og HK.
Ef FH verður í 4. sæti eftir fimmtudaginn þá sækir Akureyri FH heim strax á mánudagskvöldið og það yrði þar með þriðji innbyrðis leikur liðanna í röð og það á átta dögum! Væntanlega verða leikmenn liðanna farnir að þekkja vel inn á hvern annan eftir þá rimmu. En þetta skýrist allt á fimmtudagskvöldið. |