Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Greinilegt að það verður barist til þrautar í kvöld



17. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Stemming meðal leikmanna

Sveinbjörn Pétursson markvörðurinn snjalli í liði Akureyrar reiknar með erfiðum leik gegn FH-ingum í N1-deildinni í kvöld en liðin eigast við öðru sinni á þremur dögum og gætu mæst þriðja leikinn í röð í Kaplakrika á mánudaginn. Heil umferð fer fram í deildinni í kvöld.

Akureyri sló FH út í undanúrslitum bikarkeppninnar á mánudagskvöldið með 23:20 sigri og hefndu þar með ófaranna frá því í úrslitum deildarbikarkeppninnar þar sem FH hafði betur í úrslitaleik.

„Ég held að leikurinn við FH í kvöld verði hörkuslagur. Ég býst við FH-ingunum mjög grimmum enda trúi ég ekki öðru en að þeir séu hundfúlir eftir tapið á móti okkur á mánudaginn. Okkar bíður því verðugt verkefni í kvöld. Við erum komnir niður á jörðina.
Það var gaman á mánudaginn en strax á þriðjudaginn hófst undirbúningurinn undir leikinn í kvöld. Þó svo að við séum með þriggja stiga forskot á toppnum þá er ekkert í höfn ennþá. Hlutirnir geta verið fljótir að breytast og við getum ekki leyft okkur að slaka neitt á. Við ætlum að reyna að bæta okkar leik og taka eitt skref í einu,“ sagði Sveinbjörn við mbl.is.

„Það er fínt veganesti fyrir leikinn í kvöld að hafa unnið þá í bikarnum,” segir Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar í viðtalið við Vikudag.

Sömuleiðis hefur Vikudagur eftir Ólafi Guðmundssyni leikmanni FH að tapið í bikarnum sl. mánudag muni ekki sitja í FH-ingum í kvöld. „Þetta er nýr leikur og allt önnur keppni,“ segir Ólafur.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson