 Ekkert gefið eftir í baráttu liðanna
| | 21. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: FH - Akureyri í beinni á SportTV.isBarátta Akureyrar og FH heldur áfram í kvöld en nú mætast liðin reyndar í Hafnarfirði, nánar tiltekið í Kaplakrikanum og hefst leikurinn klukkan 18:30. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu SportTV.is ætla þeir að sýna leikinn beint á netinu og fögnum við því að sjálfsögðu.
Eins og kemur fram í síðustu frétt leggja FH ingar allt undir í þessum leik og bjóða öllum áhorfendum upp á grillaða hamborgara að hætti Gunnars Gassa Gunnarssonar. Við hvetjum alla stuðningsmenn okkar á Suðvesturhorninu að drífa sig á leikinn, liðin hafa sýnt að þau kunna svo sannarlega að skemmta áhorfendum. Útsendingin byrjar væntanlega rétt fyrir klukkan 18:30.
Til að fylgjast með útsendingunni á SportTV.is skaltu smella hér. |