Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Ţađ kemur úrslitaleikur eftir ţennan leik

27. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Valsmenn bikarmeistarar 2011

Valsmenn eru Eimskipsbikarmeistarar karla í handknattleik eftir sigur á Akureyri í hádramatískum og frábćrum úrslitaleik í Laugardalshöll 26-24. Valsmenn höfđu eins marks forystu í hálfleik og geta ţakkađ sigurinn gríđarlega sterkri liđsheild ţar sem allir leikmennirnir lögđu lóđ sín á vogarskálarnar.
Hér á eftir fer umfjöllun Snorra Sturlusonar, fréttritara sport.is um leikinn:

Akureyringar virtust örlítiđ betur innstilltir á leikinn í Höllinni framan af fyrri hálfleik, voru skrefinu á undan fram undir miđjan hálfleikinn og fátt í leik Valsmanna virtist valda ţeim átakanlegum erfiđleikum. Leikurinn var reyndar í járnum, ekki svo ađ skilja ađ Valsmenn hafi veriđ á hćlunum, en norđanmenn voru frísklegri međ Bjarna Fritzson og Heimi Örn Árnason í ađalhlutverkum og Sveinbjörn í ágćtum ham í markinu.


Heimir búinn ađ hrista Erni Hrafn af sér. Mynd: Hilmar Ţór sport.is

Valsmenn hleyptu ţeim hins vegar aldrei of langt frá sér og rétt í ţann mund sem fyrri hálfleikurinn var hálfnađur tókst ţeim ađ stilla sig betur af og jafna metin. Spámenn og spekingar hafa haft áhyggjur af varnarleik Valsmanna og ţá einkum og sér í lagi miđri Valsvörninni, en ţar var Einar Örn Guđmundsson í ágćtum ham viđ hliđ Orra Freys Gíslasonar og ekki skemmdi ţađ fyrir ađ Sturla og Finnur Ingi spiluđu fína vörn á hornamenn Akureyringa. Valsmenn komust yfir í fyrsta sinn í leiknum eftir 22 mínútna leik, 11-10, og héldu frumkvćđinu til loka fyrri hálfleiks. Stađan í hálfleik var 14-13 fyrir Val.


Oddur kominn í gegn og skorar. Mynd: Hilmar Ţór sport.is

Akureyringar voru tiltölulega fljótir ađ jafna metin í síđari hálfleik og liđin héldust í hendur nćstu mínúturnar. Valsmenn náđu undirtökunum aftur og komust í tvígang tveimur mörkum yfir, en ţeim gekk bölvanlega ađ hrista Akureyringa af sér og ţegar síđari hálfleikurinn var hálfnađur var stađan jöfn, 21-21. Óskar Bjarni Valsţjálfari var, rétt eins og í fyrri hálfleik, mun duglegri ađ skipta mönnum inn og út heldur en starfsbróđir hans á hinum bekknum, en Atli Akureyrarţjálfari hefur reyndar veriđ ţekktur fyrir ţađ í gegnum tíđina ađ hrókera tiltölulega lítiđ međ sín liđ. Valsmenn dreifđu markaskorun betur en norđanmenn; Orri Freyr, Valdimar Fannar, Anton og Finnur Ingi létu allir talsvert ađ sér kveđa og Ernir var öflugur í síđari hálfleik.


Hörđur Fannar skorađi tvö og fiskađi tvö víti. Mynd: Hilmar Ţór sport.is

Ţegar rétt tćpar tíu mínútur voru til leiksloka náđu Valsmenn ţriggja marka forystu, 24-21, og Akureyringar virtust vera ađ rata í vandrćđi. Ţeir réđu illa viđ vel stillta Valsvörnina, urđu ragir og tóku nokkrar illa ígrundađar ákvarđanir, en Sveinbjörn markvörđur, stórbćttur norđlenskur varnarleikur og klaufagangur Valsmanna urđu til ţess ađ fimm mínútum fyrir leikslok var munurinn kominn niđur í eitt mark, 23-24. Lokamínúturnar voru ćsispennandi, svo ekki sé meira sagt, markverđirnir létu báđir til sín taka. Stađan var 25-24 fyrir Val ţegar mínúta var eftir, Akureyringar lögđu af stađ í sókn og Hlynur varđi međ stórkostlegum hćtti frá Herđi Fannari á línunni hálfri mínútu fyrir leikslok. Sturla Ásgeirsson innsiglađi svo sćtan sigur Valsmanna međ marki í ţann mund sem leiktíminn rann út, 26-24 fyrir Val.


Bjarni Fritzson í baráttu viđ Heiđar Ţór Ađalsteinsson. Mynd: Hilmar Ţór sport.is

Valsmenn áttu sigurinn fyllilega skilinn, ţeir voru betri en Akureyringar í dag, svo einfalt er ţađ. Varnarleikurinn var lengstum fantagóđur međ Einar og Orra í miklum ham á miđjunni og framlag Hlyns í markinu verđur seint metiđ ađ fullu. Valsmenn dreifđu álaginu í sókninni ljómandi vel; Anton skorađi mörk úr sínum ómögulegu fćrum, Finnur er gríđarlega öflugur og dýrmćtt fyrir Valsmenn ađ hann skuli vera kominn á ferđina á ný eftir meiđsli, Sturla nýtir fćrin sín af stakri snilld, Orri var öflugur á línunni og Valdimar Fannar er hrikalega öflugur sóknarmađur, sem verđur reyndar til ţess ađ framlag hans í vörninni er á löngum stundum vanmetiđ.


Stuđningsmenn Akureyrar stóđu sig frábćrlega í Laugardalshöllinni. Mynd: Hilmar Ţór sport.is

Akureyringar voru hins vegar fjarri sínu besta, náđu ekki ađ keyra upp hrađann sem hefur skilađ ţeim ófáum mörkum og lentu í ţeirri óvenjulegu stöđu ađ vera í eltingaleik meginhluta leiksins. Ţeir voru hins vegar aldrei langt á eftir Valsmönnum og voru í bullandi séns fram á lokamínúturnar, en engu ađ síđur var Akureyrarliđiđ ađ mörgu leyti ólíkt sjálfu sér. Sveinbjörn lagđi sitt af mörkum, varđi vel í markinu og Bjarni og Oddur stóđu fyrir sínu sóknarmegin. Heimir Örn virtist í fyrri hálfleik ćtla ađ vera nokkurn veginn á pari, hann býr yfir ţeim ágćtu kostum ađ geta losađ um sóknarstíflur og er frábćr leikmađur, en taktleysi liđsins hafđi sín áhrif ţegar á leiđ.

Mörk Vals: Orri Freyr Gíslason 5, Anton Rúnarsson 5, Sturla Ásgeirsson 5, Finnur Ingi Stefánsson 4, Valdimar Fannar Ţórsson 4, Ernir Hrafn Arnarson 3.
Varin skot: Hlynur Morthens 12.

Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 7 (3 víti), Bjarni Fritzson 6, Heimir Örn Árnason 4, Guđmundur Hólmar Helgason 4, Hörđur Fannar Sigţórsson 2, Daníel Örn Einarsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 16

Akureyringar ţurfa ţó ekki ađ bíđa lengi eftir ađ svara fyrir tapiđ en liđin mćtast einmitt í nćstu umferđ N1-deildarinnar nćstkomandi fimmtudag, ţann 3. mars, á heimavelli norđanmanna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson