Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Allir lesendur heimasíðunnar geta tekið þátt

28. febrúar 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Kosning á leikmanni febrúarmánaðar

Það er búið að vera býsna mikið að gera hjá stuðningsmönnum Akureyrar Handboltafélags í febrúar, sex leikir og þar með talinn einn bikarúrslitaleikur. Á meðan mánuðurinn er mönnum enn í fersku minni opnum við nú á kosningu á leikmanni febrúarmánaðar. Þetta er ákaflega einfalt, þú smellir í doppuna framan við nafn þess leikmanns sem þú vilt kjósa, hakar síðan í kassann neðst og smellir á hnappinn Senda svör.

Eins og áður þá er eina reglan í vali leikmanns mánaðarins er að enginn getur sigrað tvo mánuði í röð og þess vegna er markvörðurinn Stefán Guðnason ekki í boði að þessu sinni en Heimir Örn Árnason kemur aftur til greina í kosningunni. Að öðru leiti eru allir leikmenn sem tóku þátt í febrúarleikjunum í boði. Hægt verður að kjósa fram til kl. 18:30 þann 10. mars.





Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson