 Það má enginn missa af þessari skemmtun
| | 1. mars 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarKarlakvöld Akureyrar á föstudagskvöldiðNæstkomandi föstudagskvöld verður haldið glæsilegt karlakvöld Akureyrar Handboltafélags á Pósthúsbarnum. Kvöldið hefst með fordrykk klukkan 20:00 en auk þess verða frábærar veitingar frá Strikinu.
Ræðumaður kvöldsins er fyrrum handboltahetjan Logi Einarsson en veislustjórn er í höndum hins eina sanna Rögnvaldar gáfaða. Í boði verða fjölmörg óvænt skemmtiatriði, happadrætti o.fl. Verð er aðeins 3.900 krónur og innifalið í verðinu er fordrykkurinn og veitingarnar.
Miðasala er hafin á Bryggjunni en auk þess verða miðar seldir í sjoppunni á leik Akureyrar og Vals á fimmtudagskvöldið. Athugið að sértilboð er ef aðgöngumiðinn er keyptur á leiknum, þá kostar miðinn aðeins 3.500 krónur.
 |