 Hörður Fannar átti fínan leik í kvöld og var valinn maður leiksins
| | 8. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarÖruggur sigur Akureyrar á FramÞað var ljóst frá fyrstu mínútu leiksins að Akureyrarliðið kom afar vel stemmt í þennan leik og að menn voru staðráðnir í að enda deildarkeppnina með stæl. Heimir Örn fór fyrir sínum mönnum í upphafi og skoraði fyrstu þrjú mörk liðsins og eftir að staðan varð 3-2 fyrir Akureyri náðu Framarar aldrei að jafna.
Munurinn var 2 til 3 mörk en í stöðunni 11-9 komu þrjú Akureyrarmörk í röð og ljóst hvort liðið hafði meiri löngun til að sigra. Það fór vel á því að varnarjaxlinn Hreinn Þór Hauksson skyldi auka muninn í sex mörk í stöðunni 16-10 en Hreinn var að spila sinn fyrsta leik eftir erfið meiðsli í bikarúrslitaleiknum. Í hálfleik var staðan 17-12 og Akureyrarliðið að spila fína vörn og hraðan sóknarleik. Oddur Gretarsson fór mikinn í fyrri hálfleik og skoraði sex mörk, þar af tvö úr vítum.
Akureyrarliðið gerði út um leikinn í upphafi seinni hálfleiks og náði fljótt átta marka forystu 22-14. Á þessum kafla fór Sveinbjörn Pétursson á kostum í markinu og liðið í fínum málum. Fram náði einu sinni að minnka muninn niður í fimm mörk, í stöðunni 24-19 en Akureyrarliðið gaf aðeins í á ný og jók muninn jafnt og þétt sem endaði með níu marka sigri 35-26.
Hörður Fannar Sigþórsson lék mjög vel í kvöld, skoraði tvö mörk, fiskaði þrjú vítaköst og stóð vaktina vel í vörninni og var útnefndur maður leiksins.
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 10 (5 úr víti), Oddur Gretarsson 6 (2 úr víti), Guðmundur Hólmar Helgason 6, Daníel Einarsson 6, Heimir Örn Árnason 4, Hörður Fannar Sigþórsson 2 og Hreinn Þór Hauksson 1. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 14 þar af 1 vítakast , Stefán Guðnason 2 skot varin.
Mörk Fram: Jóhann Karl Reynisson 5, Andri Berg Haraldsson 5, Halldór Jóhann Sigfússon 4 (3 úr vítum), Arnar Birkir Hálfdánsson 4, Róbert Aron Hostert 2, Magnús Stefánsson 1, Jóhann Gunnar Einarsson 1, Hákon Stefánsson 1. Varin skot: Björn Viðar Björnsson 10 þar af 1 vítakast
Með þessum sigri náði Akureyri yfihöndinni í innbyrðisleikjum gegn Fram. Þar með státar Akureyraliðið af því að hafa betur gegn öllum liðunum sem léku í N1 deildinni í ár.
Eina spennan fyrir þessa lokaumferð var hver yrði í 3. sæti N1 deildarinnar og þar sem HK tapaði fyrir FH í kvöld er ljóst að HK verður í fjórða sætinu og mun því leika gegn Akureyri í úrslitakeppninni en í hinni viðureigninni eru það FH og Fram sem mætast.
|