Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bjarni fer inn úr hægra horninu en hefur einnig farið á kostum sem hægri skytta!

12. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bjarni í úrvalsliði 15.-21. umferðar N1 deildarinnar

Í hádeginu í dag var tilkynnt um val á leikmönnum 15.-22. umferðar N1 deildarinnar. Það eru þjálfarar liðanna ásamt valnefnd sem hafa atkvæðisrétt í þessu vali. Að þessu sinni er Bjarni Fritzson í hópnum en hann er valinn besti hægri hornamaðurinn og er þetta í annað sinn sem Bjarni er valinn en hann var einnig valinn bestur í fyrstu sjö umferðunum.
Að öðru leiti er úrvalslið umferðanna sem hér segir:

Markvörður: Hlynur Morthens, Val
Vinstra horn: Bjarki Már Elísson, HK
Vinstri skytta: Ólafur Guðmundsson, FH
Miðjumaður: Ásbjörn Friðriksson, FH
Hægri skytta: Ernir Hrafn Arnarson, Val
Hægra horn: Bjarni Fritzson, Akureyri
Línumaður: Orri Freyr Gíslason, Val

Ásbjörn Friðriksson var þar að auki valinn besti leikmaður umferðanna en hann hefur svo sannarlega verið maðurinn á bak við velgengni FH liðsins í vetur þó að honum hafi ekki alltaf verið hampað sem skyldi.

Aðrar viðurkenningar voru þessar:

Besti þjálfarinn: Kristján Arason og Einar Andri Einarsson, FH
Besti varnarmaðurinn: Sigurgeir Árni Ægisson, FH
Besta umgjörðin: FH
Bestu dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson

Við óskum öllum þessum til hamingju með sínar viðurkenningar.


Bjarni Fritzson og Ásbjörn Friðriksson áttust við í Höllinni í bikarkeppninni

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson